Um fjölmiðlaumfjöllun og hdl. námskeið

11.3.2010

Að beiðni lagadeildar Háskóla Íslands tók Lögmannafélag Íslands, að fengnu samþykki prófnefndar um héraðsdómslögmannsréttindi, saman tölulegar upplýsingar um niðurstöður prófraunar á árabilinu 2005-2009. Upplýsingarnar má finna á: http://www.hi.is/files/skjol/stjornsysla/markads_og_samskiptasvid/frettir_og_vidburdir/fyrirlestrar/LMFI_svor.pdf.  Um þessar upplýsingar hefur verið fjallað í fjölmiðlum þar sem neikvæð mynd er dregin af frammistöðu lögfræðinga sem útskrifast hafa frá lagadeild HR. Af því tilefni er rétt að vekja athygli á nokkrum mikilvægum atriðum.

Lagadeild HR hefur frá upphafi lagt áherslu á að bjóða nemendum sínum upp á víðtækt nám sem þjónar viðskiptalífinu og samfélaginu í heild sem best. Þannig hefur alltaf verið að því stefnt að nám við lagadeild HR endurspegli þá þörf fyrir lagakunnáttu sem samfélagið kallaði á hverju sinni. Þessar áherslur koma m.a. skýrt fram í grunnnámi við lagadeild HR.

 Þó svo að nám við lagadeild HR sé vissulega ætlað að undirbúa nemendur fyrir störf í lögmennsku er langt frá því að það séu þau einu störf sem bíða nemenda að námi loknu. Því er í meistaranámi við lagadeild HR lögð sérstök áhersla á að bjóða upp á námskeið á sviðum alþjóðalaga og alþjóðaviðskipta og fjármunaréttar auk námskeiða á sviði dómstóla og málflutnings.

Fyrirliggjandi upplýsingar um árangur lögfræðinga frá HR í námskeiðinu vekja vissulega spurningar en mikilvægt að hver og einn kynni sér þær vel. Í því sambandi er sérstaklega bent á eftirfarandi:

  • o   Framsetning tölfræðiupplýsinga sem liggja fyrir er með þeim hætti að lagadeild HR telur þörf á að óska eftir frekari upplýsingum frá LMFÍ og prófnefndinni.  Til dæmis er ekki tekið tillit til þess hversu margir þreyttu í raun prófin heldur eingöngu miðað við fjölda skráðra í námskeiðið.  Þá kemur ekki fram í þessum upplýsingum hvenær þátttakendur luku lagaprófi.   Eðli málsins samkvæmt eru allir þátttakendur frá HR nýútskrifaðir.  Að lokum er ekki gerður fyrirvari við hversu stutt tímabil upplýsingarnar ná yfir, 3 ár í tilviki HR.  Meðfylgjandi er bréf sem hefur verið sent til prófnefndar um héraðsdómslögmannsréttindi.
  • o   Á síðustu þremur árum hefur lagadeild HR útskrifað samtals 129 nemendur með fullnaðarpróf í lögum. Upplýsingarnar frá LMFÍ sýna að af þessum hópi hafa 45 lögfræðingar skráð sig í prófraun til málflutningsréttinda og 38 lokið henni eða samtals 84.4% af þeim sem skráðu sig.

 
Á næstu vikum mun fara fram vinna við að greina þær upplýsingar sem aflað verður og móta viðbrögð sem gerir lagadeild HR enn sterkari og betri. Við þá vinnu, sem nemendur fá að fylgjast með, er þó mikilvægt að hafa í huga að  lagadeild HR leggur mikla áherslu á að þjálfa nemendur í að beita lögfræðilegri aðferðarfræði á raunhæf álitaefni. Ljóst er að mikilvægi þeirrar nálgunar er sennilega meira í dag en nokkru sinni fyrr.

Bréf sent til Prófnefndar um héraðsdómslögmannsréttindi 10. mars 2010



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica