Laganemar við HR þjálfaðir í tæknivæddum dómsal

9.6.2010

Dómssalur í Nauthólsvík

Lagadeild Háskólans í Reykjavík hefur formlega tekið í notkun nýja kennslustofu í húsnæði skólans við Nauthólsvík sem hönnuð er frá grunni og innréttuð sem dómsalur. Stofan þjónar m.a. þeim tilgangi að þjálfa nemendur í störfum dómara og lögmanna.

Í dómsalnum er dómaraborð fyrir allt að fimm dómara og sæti fyrir átta lögmenn, auk ræðustóls. Hátt er til lofts og vítt til veggja og tekur salurinn um 60 áhorfendur í sæti.

Í dómsalnum er fullkominn tölvubúnaður, hljóðkerfi og fjórar tökuvélar  sem taka upp hljóð og mynd. Dómsalurinn er því með þeim tæknivæddustu á landinu.

Í lagadeild HR hefur verið lögð rík áhersla á að flétta inn í kennsluna lausn raunhæfra verkefna. Liður í því hefur verið að nemendur semji stefnur og greinargerðir og flytji mál fyrir dómi. Til þessa hefur lagadeildin fengið inni í Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Reykjaness og notið mikils velvilja dómstjóranna.  

Með tilkomu nýja dómsalarins gefast fleiri tækifæri til að flétta hvers kyns raunhæf verkefni og málflutning enn betur inn í kennslu en gert hefur verið. Jafnframt hentar salurinn vel til hvers kyns kynninga á verkefnum og til þjálfunar í framsögn og ræðumennsku. Þá stendur laganemum til boða að nota salinn til málflutningsæfinga.

Um það bil fjögur hundruð nemendur stunda nám við lagadeild HR.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica