Lagadeildin flytur
Lagadeildin flutti úr Ofanleiti í Nauthólsvík sl. mánudag. Deildin er búin að vera staðsett í Ofanleiti frá stofnun árið 2002. Skrifstofa deildarinnar og skrifstofur kennara eru á 3ju hæð í Mars. Í vor var tekin í notkun nýr tæknivæddur dómsalur sem notaður verður í kennslu. Stundaskrár hafa verið birtar á heimasíðu deildarinnar svo og skipulag námskeiða í grunnnámi. Kennsla hefst fimmtudaginn 19. ágúst skv. stundaskrá en nýnemadagar verða haldnir 17. og 18. ágúst.
Skrifstofa lagadeildar verður lokuð frá 12. júlí til 3. ágúst

