Ragnarsbók komin út
Mannréttindaskrifstofa Íslands og Hið íslenska bókmenntafélag, í samvinnu við Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík, hafa gefið út Ragnarsbók, fræðirit um mannréttindi til heiðurs Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni.
Mannréttindaskrifstofa Íslands og Hið íslenska bókmenntafélag, í samvinnu við Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík, hafa gefið út Ragnarsbók, fræðirit um mannréttindi til heiðurs Ragnari Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni. Ragnar hefur um áratugaskeið verið atorkusamur lögmaður og unnið ómetanlegt starf á sviði mannréttinda og stjórnskipunar íslensku samfélagi til hagsbóta. Ragnarsbók inniheldur bæði ritrýndar fræðigreinar um réttarríkið, mannréttindi og stjórnskipunarrétt sem og óritrýndar hugleiðingar um mannréttindamál líðandi stundar. Hluti efnis í bókinni byggir á erindum sem voru flutt á Ragnarsstefnu sem haldin var við Háskólann á Akyreyri í tilefni af sjötugsafmæli Ragnars og erindum sem flutt voru á ráðstefnunni Freedom of Expression in Europe and Beyond – Current Challenges, sem haldin var við Háskólann í Reykjavík. Ritið er um 300 bls., vandað og veglegt í alla staði. Í ritnefnd voru Brynhildur G. Flóvenz, Davíð Þór Björgvinsson, Guðrún Dögg Guðmundsdóttir og Oddný Mjöll Arnardóttir.

