Afburðanemendi við lagadeild HR tekinn tali. Stökkið stærra úr grunnskóla í menntaskóla Góður árangur byggist á skipulagi

23.9.2010

Viðtal birt við Aldísi Geirdal í MBL. 23.9.2010/ Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is

Þetta er auðvitað full vinna og mest í kringum prófin og verkefnin. En þetta er allt spurning um skipulagningu, segir Aldís Geirdal Sverrisdóttir, þriðja árs laganemi við Háskólann í Reykjavík. Aldís hefur náð mjög góðum námsárangri við HR og verið á svokölluðum forsetalista skólans en á hann komast þeir nemendur sem eru með bestan árangur í hverri deild. Ég ætlaði alltaf að læra læknisfræði. Ég fór í Menntaskólann í Reykjavík á náttúrufræðibraut og stefndi á læknisfræðina alveg þar til síðasta árið. Þá hafði ég einfaldlega fengið nóg af líffræði og langaði bara að gera eitthvað allt annað,« segir Aldís. Lærði að læra í MR Það var ekki erfið ákvörðun að velja lögfræðina en Aldís segir að hún hafi ekki síst orðið fyrir valinu vegna þess að um mjög praktískt nám sé að ræða. »Ég gerði nú eiginlega aldrei ráð fyrir að hún yrði mjög skemmtileg en það kom mér mjög á óvart að svo skyldi vera. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt nám og alls ekki þurrt og leiðinlegt eins og margir halda vafalaust, segir Aldís og bætir við að hún sjái alls ekki eftir því að hafa valið lögfræðina. Aðspurð hvort það hafi verið stórt stökk fyrir hana að fara úr framhaldsskóla í háskóla segir hún svo ekki hafa verið. Ég fór í Menntaskólann í Reykjavík og þar tileinkar maður sér strax þennan hugsunarhátt að þú verðir að lesa, annars nærðu ekki prófum. Það dýrmætasta sem ég í raun lærði í MR var það að læra,« segir Aldís og bætir við að námið þar hafi verið afar góður undirbúningur fyrir háskólanámið síðar. Það er örugglega oft stórt stökk fyrir marga að fara úr framhaldsskóla og upp í háskóla. En í rauninni var stökkið hjá mér á milli grunnskóla og menntaskóla miklu meira, segir Aldís.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica