Berjumst gegn heimilisofbeldi. Austurríska leiðin.

27.10.2009

Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir fræðafundi þriðjudaginn 27. október kl. 12 – 13 í húsnæði skólans að Ofanleiti 2, stofu 101.

Fjallað verður um hvort lögfesting „austurrísku leiðarinnar“, sem felur í sér heimild lögreglu til að fjarlægja ofbeldismann af heimili sínu, sé raunhæft úrræði til að sporna frekar gegn heimilisofbeldi.

 Erindi flytja:

·      Ása Ólafsdóttir, hrl. og aðstoðarmaður dómsmála- og mannréttindaráðherra

·      Stefán Eíríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu

·      Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins

Fundinum stýrir Svala Ólafsdóttir sérfræðingur við lagadeild HR.

 Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica