Verður takmarkaðri ábyrgð hluthafa aflétt?

Um lagaleg og siðferðileg álitamál þegar hlutafélagaformið er misnotað.

12.1.2010

Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hádegisfundi þriðjudaginn 12. janúar nk. kl. 12:00-13:00 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður og aðjúnkt við HR, fjallar um eðli takmarkaðrar ábyrgðar í hlutafélögum og hvort unnt sé að víkja frá henni í undantekningartilvikum, þannig að hluthafar verði látnir bera persónulega ábyrgð á skuldbindingum sem til er stofnað í nafni hlutafélags.

Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við HR, fjallar um þá spurningu hvort réttlætanlegt sé að aflétta hinni takmörkuðu ábyrgð í þeim aðstæðum þar sem hlutafélagaformið hefur verið misnotað. Þá fjallar hann um hvað teljist hæfileg refsing þegar misnotkun af því tagi kemst upp?

Að fundinum loknum verða almennar umræður.

Fundarstjóri: Sigurður Tómas Magnússon, sérfræðingur við lagadeild HR.

Aðgangur ókeypis og öllum opinn.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica