Þeir fólar sem frelsi vort svíkja.

Lög, ásakanir og dómar um landráð á Íslandi

26.1.2010

Hádegisfundur

„ÞEIR FÓLAR SEM FRELSI VORT SVÍKJA“

Lög, ásakanir og dómar um landráð á Íslandi

Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hádegisfundi þriðjudaginn 26. janúar nk. kl. 12:00-13:00 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2.

Guðni Th. Jóhannesson, lektor við laga- og viðskiptadeild HR, flytur erindi um landráð og sögu landráða á Íslandi.

Óðara eftir efnahagshrunið á Íslandi haustið 2008 heyrðust þær ásakanir að landráð hefðu verið framin í aðdraganda þess; að bankamenn, stjórnmálamenn og embættismenn hefðu gerst sekir um þvílíka glæpi eða gáleysi að landráðum líktist. Er þetta rétt og hvað eru landráð? Í erindinu verður saga landráða á Íslandi rakin í stuttu máli og mat lagt á landráðatal síðustu mánaða.

Fundarstjóri verður Ragnhildur Helgadóttir prófessor við lagadeild HR. Að fundinum loknum verða almennar umræður. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica