Working in the EU institutions

2.3.2010

 Evrópuréttarstofnun Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hádegisfundi þriðjudaginn
2. mars nk. kl. 12:00-13:00 í stofu 337 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2. 

Peter Chr. Dyrberg, forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar og gestaprófessor við lagadeild HR, fjallar um stofnanir Evrópusambandsins. Þeir sem hyggjast sækja um starf hjá stofnunum fá ráðleggingar um hvernig best er að bera sig að og enn fremur fjallar hann um hvernig er að vinna í fjölmenningarlegu stofnanasamfélagi, kosti þess og galla.


Fundarstjóri:
Stefán Geir Þórisson hrl.

Að fundinum loknum verða almennar umræður.  

Erindið fer fram á ensku.  Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.


 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica