Ofbeldi í nánum samböndum
Lagadeild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir hádegisfundi miðvikudaginn 21. apríl kl. 12.15 - 13.15 í stofu 101 að Ofanleiti 2.
Elva Dögg Ásu- og Kristinsdóttir, meistaranemi við lagadeild Háskólans í Reykjavík, mun kynna niðurstöður rannsóknar sem er hluti af meistaraprófsritgerð hennar við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Rannsóknin var unnin úr gögnum Kvennaathvarfsins og fjallar um fremjendur ofbeldis gegn konum sem leita á náðir athvarfsins.
Fundarstjóri er Svala Ísfeld Ólafsdóttir sérfræðingur við lagadeild HR.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

