Grunnnám í lögfræði (BA)
BA í lögfræði 180 ECTS - 3 ár ML í lögfræði 120 ECTS - 2 ár
Námið samanstendur af 165 ECTS kjarnanámi og 15 ECTS vali. Námið, kennslan og námsmatið er verkefnatengt.
Andri Gunnarsson - lögmaður hjá Nordik lögfræðiþjónustu
Alþjóðleg uppbygging námsins í HR, sérfróðir kennarar og áhersla á samræðu nemenda og kennara ásamt raunhæfum verkefnum hefur reynst mér gott veganesti út í atvinnulífið. Ég fann strax eftir útskrift að námið hafði veitt mér traustan grunn til að veita íslenskum og erlendum aðilum fjölbreytta ráðgjöf um lögfræðileg málefni. Námið gaf mér einnig aukið sjálfstraust til að sýna frumkvæði og forystu í daglegum störfum mínum. Að velja lagadeild HR reyndist mikið heillaspor.
FULLNAÐARPRÓF Í LÖGFRÆÐI
Þeir sem ljúka meistaranámi við deildina að undangengnu grunnnámi í lögfræði og a.m.k. 240 ECTS í lögfræðigreinum teljast hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði og uppfylla því almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda.
RAUNHÆF VERKEFNI
Strax á 1. áritaka laganemar þátt í nýsköpunarnámskeiði sem heitir Nýsköpun og stofnun fyrirtækja. Námskeiðið er einnig skyldunámskeið hjá nemendum í viðskiptafræði og verkfræði og valnámskeið í öðrum deildum skólans. Markmið námskeiðsins er að nemendur læri að stofna fyrirtæki á grundvelli viðskiptahugmynda og viðskiptaáætlana sem þeir hafa sjálfir tekið þátt í að móta.
Á vorönn á 2. ári er námskeið sem miðar að því að þjálfa nemendur í skjalagerð, ræðumennsku og málflutningi. Á námskeiðinu eru fluttir fyrirlestrar um gerð stefnu og greinargerðar og reyndir lögmenn fræða nemendur um málflutning fyrir dómi. Nemendur byggja síðan upp dómsmál frá grunni með gerð stefnu og greinargerðar og námskeiðinu lýkur með munnlegum málflutningi í nýjum dómsal Háskólans í Reykjavík.
Skólagjöld í grunnnámi eru 162.000.-