BA verkefni

 BA - verkefni

Verklagsreglur um BA ritgerðir (L-611) við lagadeild HR. (pdf)

Tímaáætlun vegna BA ritgerða (L-611) við lagadeild HR (pdf)

Eyðublað vegna BA-ritgerða (L-611) (pdf)

Heimildaskráningastaðall OSCOLA

L-611 BA verkefni 15 ECTS

Skipulag: Haldið er námskeið um ritun ritgerða í upphafi annar. Skyldumæting er á námskeiðið.  Sjá frekari upplýsingar í tímaáætlun BA ritgerða.

Lýsing:

BA-ritgerð getur komið í stað tveggja valgreina. Ritgerðin vegur 15 einingar. BA-ritgerð er sjálfstætt verkefni nemenda.

• Fjalla um lögfræðilegt viðfangsefni eða viðfangsefni sem tekur til lögfræðilegra álitaefna auk álitaefna á öðrum fræðasviðum og sem tilefni er til að fjalla um á þeim tíma sem ritgerðin er skrifuð. • Fela í sér fræðilega notkun frumheimilda og afleiddra heimilda eftir því sem viðfangsefni ritgerðarinnar gefur tilefni til. • Uppfylla þau markmið sem nemandinn hefur sett sér áður en vinnan hófst og leiðbeinandi hefur fallist á. Markmiðin skulu koma skýrt fram í inngangi ritgerðarinnar. • Efnistökin skulu vera með þeim hætti að ljóst sé að ekki liggi færri en 375-450 vinnustundir að baki ritgerðinni.

Lengd ritgerðarinnar skal vera á bilinu 12.500-15.000 orð. Forseti lagadeildar skipar prófdómara og skulu leiðbeinandi og prófdómari sameiginlega leggja mat á ritgerð nemanda. Séu leiðbeinendur fleiri en einn, leggja þeir sameiginlega mat á ritgerðina og er þá ekki þörf á prófdómara.

Um framangreint vísast nánar til leiðbeininga um BA ritgerðir og verklagsreglna lagadeildar um prófdómara.

BA-ritgerð skal skila á skrifstofu lagadeildar innan skilafrests. Nemanda er óheimilt að draga til baka ritgerð sem skilað hefur verið.

Nái nemandi ekki lágmarkseinkunn í BA ritgerð getur hann valið milli þess að skrifa aðra 15 eininga ritgerð eða taka tvær valgreinar. Með annarri ritgerð er átt við að nemandi skrifi nýja ritgerð hjá öðrum leiðbeinanda. Nemandi getur óskað eftir sérstöku samþykki forseta lagadeildar fyrir ritgerðarefni sem gerir honum kleift að nýta fyrri vinnu við heimildaöflun. Í slíkum tilvikum þarf nemandi að gera sérstaklega grein fyrir nýrri/breyttri nálgun og/eða efnistökum. Við afgreiðslu slíkrar beiðni skal deildarforseti leita álits  viðkomandi leiðbeinanda.

Skyldumæting er á námskeið um ritun ritgerða í upphafi annar og á kynningu á ritgerðarefni í byrjun apríl.

Námsmat: Kynning á ritgerðarefni í byrjun apríl. Skyldumæting. Ritgerð 100%

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica