Framvinda í námi

Almennt um framvindu náms í BA-námi

Nemandi skal ljúka 30 einingum á önn eða 60 einingum á ári, miðað við eðlilega námsframvindu. Nemanda er heimilt að innritast á annað námsár í lagadeild, hafi hann lokið a.m.k. 48 einingum af námsefni fyrsta árs, með meðaleinkunn 6 eða hærri. Til að hefja nám á þriðja ári þarf nemandi að hafa lokið a.m.k. 96 einingum á fyrsta og öðru námsári, með meðaleinkunn 6 eða hærri. Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 90 einingum úr lagadeild í síðasta lagi tveimur árum eftir síðustu innritun á fyrsta námsár. Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 126 einingum þremur árum eftir síðustu innritun á fyrsta námsár. Nemandi skal hafa lokið bakkalárprófi í síðasta lagi fjórum árum eftir síðustu innritun á fyrsta námsár.

Námsmat og einkunnagjöf

Um námsmat og einkunnagjöf í BA námi fer samkvæmt reglum HR um próf og einkunnir. Lámarkseinkunn í kjarnagreinum, valgreinum og BA ritgerð er því 5,0. Lámarkseinkunn í aðferðarfræði (námskeið L-101) er þó 6 og þurfa nemendur að ná lágmarkseinkunn 6 að meðaltali úr verkefni og skriflegu miðannarprófi til að heimilt sé að gangast undir munnlegt lokapróf. Í greinum þar sem lokapróf, hvort sem það er munnlegt eða skriflegt, er hluti námsmats skulu aðrir námsþættir því aðeins metnir inn í lokaeinkunn, að nemandi hafi hlotið tilgreinda lágmarkseinkunn á lokaprófi enda vegi lokaprófið a.m.k. 20% af lokaeinkunn námskeiðsins. Nái nemandi ekki tilgreindri lágmarkseinkunn á lokaprófi getur hann ekki nýtt sér einkunnir sem hann hefur fengið fyrir aðra námsþætti, þótt hann endurtaki námskeiðið síðar

Endurinnritun

Uppfylli nemandi ekki framangreind lágmarksskilyrði um námsframvindu, fellur réttur til frekara náms við deildina niður. Nemandi getur þó sótt um endurinnritun í deildina. Þar sem heimild til endurinnritunar felur í sér undantekningu frá lágmarksskilyrðum um  námsframvindu eru þau skilyrði sett að námsferill nemanda beri með sér ótvíræða námsgetu eða ótvíræðar framfarir í námi og að meðaleinkunn sé 6 eða hærri. Sé slík heimild veitt, heldur nemandi sem þess óskar þeim námskeiðum sem lokið hefur verið með einkunn 6 eða hærri. Heimild til endurinnritunar verður aðeins veitt einu sinni á námstímanum.

Endurtekning prófa

Nemendum er heimilt að sitja hvert námskeið tvisvar sinnum og þreyta þau próf sem í boði eru í bæði skiptin. Að sitja námskeið þýðir að nemandi hefur verið skráður í námskeið eftir að frestur um úrsögn er liðinn. Nemanda, sem uppfyllir ekki framangreindar kröfur og óskar eftir að halda áfram námi við deildina, ber  að sækja um endurinnritun. Um forsendur og afleiðingar endurinnritunar fer skv. 11. gr. eftir því sem við á.

Ákvæði þetta tekur til próftöku nemenda í námskeiði sem þeir vorur fyrst skráðir í haustið 2011 eða síðar.

Námshlé

Nemandi getur sótt um til námráðs að gera hlé á námi sínu. Beiðnin skal studd fullnægjandi gögnum er sýni að gildar ástæður séu fyrir beiðninni. Meðal ástæðna sem réttlætt geta námshlé eru barneignir og veikindi. Leyfi til námshlés má veita með skilyrðum. Hámarkslengd námshlés er 1 ár. Hámarksnámstími skv. reglum þessum framlengist sem námsleyfi nemur

Undanþágur

Hafi námsráð komist að þeirri niðurstöðu að undanþágur frá reglum um framvindu náms og námshlé samkvæmt 11. og 13. gr. reglna þessara eigi ekki við getur deildarfundur lagadeildar, ef ríkar ástæður eru til, veitt frekari undanþágur frá þeim reglum. Slík heimild verður aðeins veitt í algjörum undantekningartilvikum.

Sjá eining stjórnskipulag lagadeildar og reglur um BA nám við lagadeild HR


Samþykkt á deildarfundi lagadeildar 13. janúar 2012



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica