Inntökuskilyrði
Umsækjandi um grunnnám við lagadeild Háskólans í Reykjavík skal hafa lokið stúdentsprófi eða jafngildu prófi samanber 19. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Í undantekningartilvikum er heimilt að innrita nemendur sem að mati inntökunefndar lagadeildar búa yfir jafngildum þroska og þekkingu og þeir nemendur sem lokið hafa stúdentsprófi eða jafngildu prófi.
Við val á umsækjanda er einkunn á stúdentsprófi eða jafngildu prófi höfð til hliðsjónar. Sérstaklega er litið til einkunna í íslensku, ensku, norrænu tungumáli og stærðfræði. Annars konar þekking og reynsla, svo sem úr atvinnulífinu, þátttaka í félagsstörfum, íþróttum, tónlistarnámi og öðru sem talið er að reynst geti umsækjanda vel í námi, getur einnig haft áhrif á mat á umsóknum. Umsækjendur skulu gera grein fyrir þeim atriðum sem þeir telja geta orðið umsókn sinni til framdráttar í sérstakri greinargerð sem er hluti umsóknar.
Umsækjandi getur óskað eftir viðtali við fulltrúa deildarinnar óski hann eftir að kynna sig, leita upplýsinga og leggja fram viðbótargögn.
Forseti lagadeildar ákveður, að höfðu samráði við rektor, fjölda þeirra nemenda sem fá inngöngu í grunnnám.
Inntökunefnd lagadeildar tekur ákvörðun um hvaða nemendur fái inngöngu í deildina.
Grunnnám hefst að jafnaði að hausti. Forseti lagadeildar getur þó ákveðið, að höfðu samráði við rektor, að taka við umsóknum um nám í lagadeild á vorönn. Forseta deildar er heimilt að ákveða strangari skilyrði fyrir inntöku nemenda á vorönn.
Sjá eining stjórnskipulag lagadeildar og reglur um BA nám við lagadeild HR
Upplýsingar
Allar frekari upplýsingar veitir skrifstofustjóri lagadeildar: Jóna K. Kristinsdóttir með netfang: jonak@ru.is eða í síma 599-6407.
Veittir eru styrkir til nýnema í grunn- og meistaranámi. Frekari upplýsingar um styrkina má finna hér.

