Reglur um mat á fyrra námi vegna grunnnáms (BA) í lagadeild

Nemandi sem óskar eftir að ljúka BA- prófi frá lagadeild HR og óskar mats á fyrra námi vegna námskeiðs eða námskeiða þarf að sækja um slíkt mat  fyrir 15. júní vegna haustannar og 15. september vegna vorannar.

Eyðublað pdf fyrir umsókn um mat á fyrra námi.

Mat á fyrra námi

Um mat á fyrra námi fer skv. neðangreindu:

a)      Umsókn skal skilað á þar til gert eyðublað sem finna má á heimasíðu lagadeildar.  Umsóknin skal vera skrifleg og studd fullnægjandi gögnum um það nám sem óskast metið þ.e. nákvæmri námslýsingu og staðfestu prófskírteini eða staðfestu afriti af einkunnum frá kennslusviði viðkomandi skóla.

b)      Eingöngu nám á háskólastigi kemur til álita í þessum efnum.

c)      Námskeið sem nemandi hefur lokið  meira en 9 árum áður en hann innritast til náms í lagadeild eru ekki metin til eininga. Einungis eru metin námskeið sem nemandi hefur lokið með einkunn 6 eða hærri hvort sem um er að ræða námskeið sem tekin hafa verið innan lagadeildar HR, öðrum deildum HR eða frá öðrum háskólum.

d)     Heimilt er að meta fyrra nám til allt að 90 eininga ef um er að ræða samfellt nám sem námsráð metur sambærilegt við BA nám í lagadeild.. Sé nám það sem óskað er eftir að verði metið ekki sambærilegt við BA nám í lagadeild  má meta fyrra nám til allt að 15 eininga.

e)      Nemandi sem óskar mats á  námskeiðum úr loknum námsgráðum á sviði lögfræði skal uppfylla skilyrði a) - c) liða  hér að framan. Þá skal hann jafnframt uppfylla eftirfarandi skilyrði:
    i.            Einkunn skal vera 6 eða hærri í öllum námskeiðum sem metin eru.
    ii.            Nemandi skal ljúka að lágmarki 90  einingum í lögfræði við lagadeild HR.
    iii.            Nemandi skal verja að lágmarki 50% af námstíma sínum við HR.

Nemandi sem óskar mats á fyrri námskeiðum úr loknum námsgráðum á öðrum sviðum en lögfræði skal uppfylla skilyrði a) - c) liða hér að framan. Í slíkum tilvikum getur nemandi að hámarki fengið metin námskeið sem svara til 15 eininga í stað valgreina á 6. önn og að auki námskeið sem teljast sambærileg þeim skyldugreinum í BA námi sem ekki teljast til lögfræðigreina

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica