Um námið


Andri Gunnarsson lögmaður útskrifaður frá lagadeild HRAlþjóðleg uppbygging námsins í HR, sérfróðir kennarar og áhersla á samræðu nemenda og kennara ásamt raunhæfum verkefnum hefur reynst mér gott veganesti út í atvinnulífið. Ég fann strax eftir útskrift að námið hafði veitt mér traustan grunn til að veita íslenskum og erlendum aðilum fjölbreytta ráðgjöf um lögfræðileg málefni. Námið gaf mér einnig aukið sjálfstraust til að sýna frumkvæði og forystu í daglegum störfum mínum. Að velja lagadeild HR reyndist mikið heillaspor. 

Andri Gunnarsson - lögmaður hjá Nordik lögfræðiþjónustu

FULLNAÐARPRÓF Í LÖGFRÆÐI
Þeir sem ljúka meistaranámi við deildina að undangengnu grunnnámi í lögfræði og a.m.k. 240 ECTS í lögfræðigreinum teljast hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði og uppfylla því almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda.

Allir nemendur sem hefja nám við lagadeild HR byrja á 3ja ára (180 ECTS) grunnnámi til BA-gráðu.  Kennsla fer að hluta fram í fyrirlestrum og raunhæfum verkefnum en einnig í formi vinnu- og umræðufunda. Að grunnnámi loknu gefst nemendum kostur á tveggja ára (120 ECTS) framhaldsnámi til meistaraprófs í lögfræði, ML og þriggja ára doktorsnámi, PhD (180 ECTS).


Sigridurlogos-litilReynsla okkar hjá LOGOS af nemendum úr lagadeild HR hefur verið mjög góð. Við höfum fengið til okkar sterka nemendur sem hafa reynst vel í starfi. Grunnurinn sem
þeir hafa úr náminu er góður, þeir eru áhugasamir og skila metnaðarfullri vinnu. Hjá LOGOS gerum við miklar kröfur um gæði og skilvirkni og hafa nemendur úr
lagadeild HR staðist þær. Lagadeildin við HR er enn ung og í mótun og verður öflugri með hverju árinu sem líður.

Sigríður Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs LOGOS.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica