Meistarapróf - ML í lögfræði, tveggja ára nám (120 ECTS)
Rannsóknartengt framhaldsnám
Meistaranám við lagadeild Háskólans í Reykjavík (HR) er 120 ECTS eininga nám. Almennt er gert ráð fyrir að námið taki tvö ár, þ.e. fjórar annir, en því ber að ljúka innan þriggja ára. Námið byggir að verulegu leyti á sjálfstæðri vinnu nemenda undir handleiðslu kennara og er sérstök áhersla lögð á rannsóknir og verkefnavinnu. Í rannsóknartengdu námi er lykilatriði að njóta leiðsagnar kennara sem sjálfir hafa lokið vísindalegu rannsóknarnámi. Í hópi þeirra kennara sem veita leiðsögn í meistaranáminu eru níu doktorsmenntaðir lögfræðingar sem nú starfa við kennslu og rannsóknir innan lagadeildar HR.
Framúrskarandi kennarar og fræðimenn
Kennarar í meistaranáminu, íslenskir sem erlendir, hafa verið valdir á grundvelli menntunar, starfsreynslu og hæfni til kennslu og rannsókna. Flestir þeirra hafa að loknu embættisprófi lokið framhaldsnámi í lögfræði við virta erlenda háskóla.
Val um áherslur og námsleiðir, sérhæfing
Eitt af megineinkennum meistaranámsins er fjölþætt val um áherslur og námsleiðir, sem veitir mikla möguleika á sérhæfingu innan lögfræðinnar og samþættingu við aðrar háskólagreinar.

