Inntökuskilyrði

BA próf eða önnur sambærileg háskólagráða í lögfræði BA, BS eða sambærileg gráða í annarri námsgrein en lögfræði

Nemendur sem ekki hafa lokið grunnnámi í lögfræði verða að ljúka námskeiði í aðferðafræði lögfræðinnar og þurfa þeir að ná meðaleinkunninni 6,0 til að standast námskeiðið. Námskeiðið skilar ekki námseiningum í meistaranáminu.

Við val á nemendum, hvort sem þeir hafa lokið grunnnámi í lögfræði eða öðru háskólanámi, er einkum litið til samsetningar fyrra háskólanáms, námsárangurs á háskólastigi og annarra atriða sem telja má að gefi vísbendingu um hæfni umsækjanda til að takast á við krefjandi rannsóknartengt meistaranám í lögfræði.

Til að ljúka fullnaðarnámi í lögfræði og uppfylla almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda þarf að ljúka a.m.k. 240 ECTS í lögfræðigreinum innan grunn- og meistaranáms í lögfræði.

Meistarapróf án grunnnáms í lögum

Meistaranám við lagadeild HR, er ekki einskorðað við nemendur sem lokið hafa grunnnámi í lögfræði, heldur geta nemendur með háskólapróf í öðrum greinum lokið meistaraprófinu. Þannig geta þeir sem t.d. hafa lokið háskólaprófi í viðskiptafræði, hagfræði, læknisfræði, hjúkrunarfræðum, stjórnmálafræði svo nokkur dæmi séu nefnd, lokið meistaraprófi í lögfræði

Opið er fyrir umsóknir hér

Hvað þarf að fylgja með umsókn um meistaranám í lögfræði?

  • Frumrit eða staðfest ljósrit af prófskírteinum.
  • Stutt greinargerð, 250-1000 orð (sjá d. lið í umsókn) þar sem umsækjandi skýrir áhuga sinn á náminu, gerir grein fyrir væntingum sínum til þess og rökstyður beiðni sína um inngöngu.
  • Starfsferilsskrá ef við á.
  • Umsögn ef umsækjandi telur slíkt styrkja umsóknina. Umsögn skal skila í lokuðu umslagi beint frá umsagnaraðila eða með fylgigögnum

Skólagjöld

Skólagjöld skólaárið 2011-2012 pr. önn eru kr. 348.000. Skólagjöld eru óendurkræf eftir að greiðsla hefur átt sér stað.  Upplýsingar um styrki má finna hér.

Nánari upplýsingar

Nánar er vísað í reglur um meistaranám  við lagadeild HR .

Ennfremur veitir skrifstofustjóri lagadeildar, Jóna K. Kristinsdóttir s. 599-6407 með netfangið jonak@ru.is  allar frekari upplýsingar.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica