Meistararitgerð
Nemandi skal skila ritgerð á síðara námsári meistaranámsins sem vegur 30 eða 60 ECTS einingar.
Eyðublað vegna skrifa á ML-ritgerð
Heimildaskráningastaðall OSCOLA
30 ECTS eininga ritgerð
Allir nemendur í framhaldsnámi (ML) við lagadeild HR skulu skrifa a.m.k. 30 ECTS eininga meistararitgerð. Hún skal uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Fjalla um lögfræðilegt viðfangsefni eða viðfangsefni sem tekur til lögfræðilegra álitaefna auk álitaefna á öðrum fræðasviðum.
- Fela í sér notkun frumheimilda og afleiddra heimilda í fræðilegum tilgangi eftir því sem viðfangsefni ritgerðarinnar gefur tilefni til.
- Uppfylla þau markmið sem nemandinn hefur sett sér áður en vinnan hófst og leiðbeinandi hefur fallist á. Markmiðin skulu koma skýrt fram í inngangi ritgerðarinnar.
- Efnistökin skulu vera með þeim hætti að ljóst sé að ekki liggi færri en 600 vinnustundir að baki ritgerðinni.
Lengd 30 ECTS eininga ritgerðar skal vera á bilinu 25.000-30.000 orð, eins og þau teljast skv. ritvinnslukerfi. Deildarforseti skipar prófdómara og skulu leiðbeinandi og prófdómari sameiginlega leggja mat á ritgerð nemanda. Séu leiðbeinendur fleiri en einn, leggja þeir sameiginlega mat á ritgerðina og er þá ekki þörf á prófdómara.
Einkunn skal gefin fyrir ritgerðina með sama hætti og fyrir námskeið við lagadeild. Lagadeild skal samræma kröfur leiðbeinenda til meistararitgerða.
60 ECTS eininga ritgerð
Nemandi í meistaranámi sem fengið hefur til þess samþykki umsjónarkennara, getur sótt um til Námsþróunarráðs að skrifa 60 ECTS eininga meistararitgerð í stað 30 ECTS eininga ritgerðar. Slík ritgerð skal uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Fjalla um lögfræðilegt viðfangsefni eða viðfangsefni sem tekur til lögfræðilegra álitaefna auk álitaefna á öðrum fræðasviðum.
- Vera hugverk höfundar og fela í sér markvert og sjálfstætt framlag til þess eða þeirra sviða sem hún fjallar um.
- Fela í sér prófun á tilgátu sem nemandinn hefur sett fram um svar við rannsóknarspurningu sem er útgangspunktur ritgerðarinnar.
- Frumheimildir og afleiddar heimildir skulu notaðar til að styrkja eða hrekja tilgátu nemandans um svar við rannsóknarspurningu sinni.
- Efnistök skulu vera með þeim hætti að ljóst sé að ekki liggi færri en 1200 vinnustundir að baki ritgerðinni.
- Ritgerð til 60 ECTS eininga skal vera 50.000-75.000 orð, eins og þau teljast skv. ritvinnslukerfi.
Hafi verið fallist á umsókn nemanda um að skrifa 60 ECTS eininga meistararitgerð, tilnefnir deildarforseti sérstaka nefnd er samanstendur af leiðbeinanda nemandans og tveimur sérfróðum mönnum á því fræðasviði sem ritgerðinni er ætlað að fjalla um. Skal meirihluti nefndarmanna hafa lokið meistaraprófi, sambærilegu námi eða æðri háskólagráðu. Skal nefndin leggja mat á ritgerð nemandans og auk þess prófa hann munnlega úr efni ritgerðarinnar í opinni málstofu. Einkunn skal gefin fyrir ritgerðina með sama hætti og fyrir námskeið við lagadeild.
Ritgerð nemanda verður ekki metin til einkunnar og námseininga fyrr en hann hefur lokið a.m.k. 60 ECTS einingum í meistaranámi með öðrum hætti.

