Námstími: 2 ár - Prófgráða: ML í lögfræði
Skipulag námsins einkennist af miklu persónulegu vali um áherslur og námsleiðir og gefur m.a. möguleika á sérhæfingu innan lögfræðinnar og samþættingu við aðrar háskólagreinar en lögfræði. Námið byggir að verulegu leyti á sjálfstæðri vinnu nemenda undir handleiðslu færustu kennara með mikilli áherslu á rannsóknir og verkefnavinnu.
Boðið er uppá þá nýjung í laganámi hér á landi að hægt er að ljúka meistaranámi í lögfræði þótt nemandi hafi ekki lokið grunnámi í lögfræði heldur annarri háskólagrein t.d. viðskiptafræði, hagfræði, stjórnmálafræði, tæknifræði eða sagnfræði svo nokkur dæmi séu nefnd. Í tilvikum sem þessum leiðir meistaraprófið ekki til fullnaðarprófs í lögfræði.
Upplýsingar um námsframboð 2012-2014 (pdf)
Fullnaðarpróf í lögfræði
Þeir sem ljúka meistaranámi við deildina að undangengnu grunnnámi í lögfræði og a.m.k. 240 ECTS í lögfræðigreinum teljast hafa lokið fullnaðarprófi í lögfræði og uppfylla því almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda.
Skipulag meistaranámsins:
Eftirtaldir þættir geta skilað nemendum einingum til meistaragráðu:
- Þátttaka í hefðbundnum námskeiðum.
- Málstofur sem tengjast rannsóknarverkefnum kennara.
- Nám við erlenda háskóla.
- Starfsnám sem skipulagt er í samvinnu deildarinnar annars vegar og stofnana og fyrirtækja hins vegar.
- Meistaraprófsritgerð. Öllum nemendum í meistaranámi er skylt að skrifa 30 eða 60 ECTS meistaraprófsritgerð. Að öðru leyti ákveður nemandi sjálfur samsetningu meistaranámsins.
Auk þess er gert ráð fyrir að stúdent geti að ákveðnu marki stundað nám í öðrum háskólagreinum en lögfræði og fengið það metið til eininga í meistaranámi.
Áherslusvið:
Innan meistaranámsins er lögð sérstök áhersla á að bjóða námskeið og málstofur á sviði:
- Alþjóðalaga og alþjóðaviðskipta
- Dómstóla og málflutnings
- Fjármunarétttar
Meistaranám af alþjóðasviði
Til að nemandi teljist hafa lokið námi af alþjóðasviði verður hann að ljúka að lágmarki 45 ECTS í kjörgreinum eða málstofum á alþjóðasviði og ennfremur að skrifa meistaraprófsritgerð á því sviði.

