Starfsnám
Hluti af meistaranáminu getur farið fram í starfsnámi og skipuleggur lagadeild Háskólans í Reykjavík  slíkt starfsnám í samvinnu við stofnanir og fyrirtæki. Nemandi í meistaranámi við lagadeild HR getur með viðurkenndu starfsnámi fengið metnar allt að 7.5 ECTS í meistaranámi á grundvelli starfsnámssamninga lagadeildarinnar og einstakra stofnana og fyrirtækja. Það skilyrði er sett í verklagsreglum um starfsnám að nemandi vinni undir eftirliti umsjónaraðila að lögfræðilegu verkefni eða verkefnum sem séu sannanlega til þess fallin að auka þekkingu hans í lögfræði og hæfni til að vinna að úrlausn lögfræðilegra verkefna.

Lagadeild hefur þegar gert starfsnámssamninga við eftirtaldar stofnanir og fyrirtæki:

  • Arion banka
  • Innanríkisráðuneytið (Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti)
  • Einkaleyfastofuna
  • Fangelsismálastofnun ríkisins
  • Félag atvinnurekenda (FA)
  • Fjármálaeftirlitið
  • Velferðarráðuneytið (Heilbrigðisráðuneytið)
  • Héraðsdóm Norðurlands-eystra
  • Héraðsdóm Reykjaness
  • Héraðsdóm Reykjavíkur
  • Héraðsdóm Vesturlands
  • Icelandair Group
  • Íslandsbanka
  • Landsvirkjun
  • Lex lögmannsstofu
  • LOGOS lögmannsþjónustu
  • Lögregluskóla ríkisins
  • Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu
  • Nýja Landsbanka Íslands hf.
  • Orkustofnun
  • Orkuveitu Reykjavíkur
  • Póst- og fjarskiptastofnun
  • Réttur - ráðgjöf og málflutningur
  • Ríkislögreglustjóra
  • Ríkissaksóknara
  • Samkeppniseftirlitið
  • Sjóvá-Almennar Tryggingar hf.
  • Skattrannsóknarstjóra ríkisins
  • Umboðsmann barna
  • Umhverfisráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Útlendingastofnun
  • Viðskiptaráð Íslands

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica