Umsagnir nemenda

Sigridurlogos-litilReynsla okkar hjá LOGOS af nemendum úr lagadeild HR hefur verið mjög góð. Við höfum fengið til okkar sterka nemendur sem hafa reynst vel í starfi. Grunnurinn sem þeir hafa úr náminu er góður, þeir eru áhugasamir og skila metnaðarfullri vinnu. Hjá LOGOS gerum við miklar kröfur um gæði og skilvirkni og hafa nemendur úr lagadeild HR staðist þær. Lagadeildin við HR er enn ung og í mótun og verður öflugri með hverju árinu sem líður.
Sigríður Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs LOGOS
.

Hulda_Hakonar-litilVorið 2008 útskrifaðist ég úr meistaranámi frá lagadeild Háskólans í Reykjavík. Í dag starfa ég sem saksóknarfulltrúi hjá embætti sérstaks saksóknara. Laganámið nýtist mér sem góður grunnur og undirbúningur undir hvers konar lögfræðileg viðfangsefni. Jafnframt tel ég að álag og skipulagning við verkefnaskil í gegnum allt námið hafi þjálfað vinnubrögð sem nýtast mér mjög vel í starfi og gera mig betur undir það búin að vinna í krefjandi umhverfi.
Hulda Hákonardóttir ML í lögfræði, útskrifaðist vorið 2008


Eva_Omars-litilNám mitt við lagadeild Háskólans í Reykjavík hefur reynst mér ómetanlegt í mínum fyrstu skrefum í atvinnulífinu. Námið var krefjandi en umfram allt skemmtilegt, metnaðarfullt og nýstárlegt með áherslu á vinnslu raunhæfra verkefna og hópavinnu og hefur það komið sér afar vel í mínu starfi. Sá metnaður sem viðhafður er í allri umgjörð námsins veitti mér enn fremur aukið sjálfstraust sem er nauðsynlegt í nýju starfi. Ég er fullviss um að námið mun nýtast mér í öllum þeim verkefnum sem bíða mín framtíðinni, í leik og starfi.
Eva Ómarsdóttir ML í lögfræði, útskrifaðist vorið 2008 og lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu

simonlitil.jpgMeistaranám í lögfræði án grunnnáms í lögum
Þjónusta endurskoðunarfyrirtækja hefur á undanförnum árum víkkað út á ýmsum sviðum og meðal annars kemur lögfræði þar meira við sögu en áður. Jafnframt er endurskoðendum nauðsynlegt að þekkja það lagaumhverfi sem viðskiptamenn þeirra búa við og getur á ýmsan hátt haft áhrif á vinnu endurskoðandans. Í störfum mínum kemur því lögfræðin víða við og vakti það áhuga minn á meistaranáminu í HR. Námið hefur svo sannarlega staðið undir væntingum og er í raun fjölbreytilegra og skemmtilegra en ég átti von á. Það nýtist nú þegar í daglegum störfum mínum og leiðir oft fram nýja fleti á viðfangsefnunum. Öll aðstaða í skólanum og aðbúnaður er eins og best verður á kosið og ofan á allt annað koma skemmtileg kynni af samnemendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans.
Símon Á. Gunnarsson löggiltur endurskoðandi hjá KPMG.

Kristjan_Vald-litil_006Eftir að hafa kynnt mér hvaða laganám væri í boði hérlendis ákvað ég að velja laganám við Háskólann í Reykjavík. Háskólinn í Reykjavík er framsýnn skóli hvað varðar nám og er skólinn í sókn á alþjóðavettvangi. Laganám við Háskólann í Reykjavík er fjölbreytilegt og skemmtilegt, en umfram allt góður undirbúningur fyrir nútíma lögfræðistörf. Miklar kröfur eru gerðar til nemenda, en aðstæður og starfsfólk skólans miða að því að nemendur standist þær kröfur. Sú reynsla sem ég hef haft af kennurum og námsefni hefur styrkt þá skoðun mína að ég hafi tekið rétta ákvörðun.
Kristján Valdimarsson ML í lögfræði, útskrifaður í janúar 2010.


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica