Fagráð

Fagráð

Fagráð lagadeildar eru námsráð og rannsóknarráð.

Námsráð

Deildarfundur skipar þrjá akademíska starfsmenn deildarinnar til setu í námsráði til tveggja ára í senn. Forseti lagadeildar gerir tillögu til deildarfundar um formann námsráðs. Að öðru leyti skiptir námsráð með sér störfum og getur sett sér starfsreglur sem mæla nánar fyrir um framkvæmd verkefna ráðsins.  Samþykki meirihluta námsráðs þarf fyrir ákvörðunum ráðsins.

Rannsóknarráð

Deildarfundur skipar þrjá akademíska starfsmenn deildarinnar til setu í rannsóknarráði til tveggja ára í senn. Forseti lagadeildar gerir tillögu til deildarfundar um formann rannsóknarráðs. Að öðru leyti skiptir rannsóknarráð með sér störfum og getur sett sér starfsreglur sem mæla nánar fyrir um framkvæmd verkefna rannsóknarráðs.




 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica