Deildarfundur skipar þrjá akademíska starfsmenn deildarinnar til setu í rannsóknarráði til tveggja ára í senn. Forseti lagadeildar gerir tillögu til deildarfundar um formann rannsóknarráðs. Að öðru leyti skiptir rannsóknarráð með sér störfum og getur sett sér starfsreglur sem mæla nánar fyrir um framkvæmd verkefna rannsóknarráðs.
Ragnhildur Helgadóttir prófessor, formaður
Gunnar Þór Pétursson, sérfræðingur
Þórdís Ingadóttir, dósent (í leyfi vor 2012)
Hlutverk rannsóknarráðs er að vinna ásamt forseta lagadeildar að eflingu rannsókna innan lagadeildar Háskólans í Reykjavík í innlendu og alþjóðlegu samhengi. Í því felst m.a:
a) Að móta stefnu í rannsóknum innan deildarinnar. Stefnumótun skal unnin í samráði við starfsmenn lagadeildar. Stefna skal mótuð til tveggja ára í senn. Stefnan skal lögð fram og kynnt af rannsóknarráði fyrir deildarfundi einu sinni á ári en á þeim fundi skal jafnframt farið yfir árangur síðastliðins árs.
b) Að stuðla að rannsóknarsamstarfi við innlenda og erlenda aðila, í samráði við starfsmenn lagadeildar.
c) Að halda utan um mat á rannsóknarstarfi innan deildarinnar og bregðast við niðurstöðum þess.
d) Að móta stefnu varðandi rannsóknarsamstarf milli kennara og nemenda.
e) Að vinna að kynningu á rannsóknarstarfi við deildina.
f) Að fara með málefni doktorsnáms í samræmi við námslýsingu doktorsnáms við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
g) Að vinna með rannsóknarráði HR.

