Ráðstefnur og fundir

Fraedafundur-litilLagadeild HR stendur reglulega fyrir fundum á sviði lögfræði.  Málfundafélag Lögréttu er einnig mjög virkt og býður upp á fjölda funda á hverri önn.

Alþjóðleg ráðstefna um skuldakreppuna.

Dagana 7. og 8. október sl. stóðu viðskiptadeild og lagadeild HR fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um skuldakreppuna sem nú skekur fjármálamarkaði. Fyrirlesarar komu frá Evrópu og Bandaríkjunum auk Íslands.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.

The Human Rights of Persons with Disabilities – from Social Policy to Equal Rights

RADSTEFNAOMA07Dagana 27.-28. september  2007 var haldin alþjóðleg ráðstefna í HR undir heitinu “The Human Rights of Persons with Disabilities – from Social Policy to Equal Rights”.  Fjöldi þekktra erlendra og innlendra fyrirlesara  fjölluðu um nýjungar í vernd mannréttinda fólks með fatlanir.  M.a. var fjallað um réttarstöðuna á grundvelli nýs sáttmála Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi fólks með fatlanir, Evrópuréttar, Mannréttindasáttmála Evrópu og landsréttar á Norðurlöndunum.  Ráðstefnan hlaut veglegan styrk úr sjóðum Evrópusambandsins vegna evrópuárs jafnra tækifæra 2007.  Með ári jafnra tækifæra stefnir Evrópusambandið að því að auka meðvitund um það að dýrmætasta auðlind Evrópu er fólkið sem þar býr og fjölbreytileiki þess.  Enn verða margir hópar þó fyrir mismunun vegna staðalímynda og fordóma á grundvelli t.d. fötlunar, kyns, kynþáttar, uppruna, trúar, lífsskoðunar, aldurs og kynhneigðar.  Ári jafnra tækifæra er ætlað að auka víðsýni og stuðla að vitundarvakningu um það að mismunun er samfélagslegt málefni sem bregðast þarf við með því að skapa raunveruleg jöfn tækifæri fyrir alla. 

Safn fræðigreina eftir ráðstefnufyrirlesara  kom út árið 2008.

Ráðstefnan var skipulögð í samvinnu lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Öryrkjabandalags Íslands og Þroskahjálpar.
 

 Upplýsingar um verðandi atburði.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica