Ráðstefna um bótarétt 21.9.2006

Bótaréttur vegna vinnuslysa

 

Þann 21. september 2006 var  í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti haldin ráðstefna um bótarétt vegna vinnuslysa. 

Markmiðið með ráðstefnunni þann 21. september n.k. var að fjalla almennt um bótarétt þess sem verður fyrir vinnuslysi. Frummælendur fjölluðu m.a. um hvaða hlutverki almannatryggingar, skaðabóta- og vátryggingaréttur, lífeyrissjóðir og sjúkrasjóðir verkalýðsfélaga gegna er maður verður fyrir vinnuslysi.  Þá var einnig fjallað um hvaða reglur gilda um samspil mismunandi bóta. Frummælendur studdust m.a. við í  umfjöllun sinni  ákveðið tilbúið dæmi um slys, sjá nánar atvikalýsingu. Erindin mynduðu þannig ákveðna heild og frummælendur vísuðu  atvikalýsinguna eftir því sem þeir töldu hana eiga við. Að loknum erindum frummælenda var síðan velt  fyrir sér spurningunni um hvort gildandi fyrirkomulag sé óþarflega flókið og ef svo er hvernig mætti bæta úr því. 

Ráðstefnan um bótarétt vegna vinnnuslysa var haldin í tengslum við rannsóknina Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótaúrræði. Dr. Guðmundur Sigurðsson og dr. Ragnhildur Helgadóttir, prófessorar  við lagadeild Háskólans í Reykjavík, fengu styrk úr Rannsóknarsjóði vegna   þeirrar rannsóknar. Að rannsókninni standa einnig Tryggingastofnun ríkisins og sérfræðingar sem þar starfa.   Rannsóknin hófst haustið 2005 og er áætlað að hún taki 3 ár.

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica