Norrænn bótaréttur vegna vinnuslysa – Nordisk kompensasjonsrett ved arbeidsskader
Ráðstefna fimmtudaginn 2. október 2008
kl. 09:00-16:00 í stofu 101 Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2
08.45 Skráning, kaffi, útdeiling ráðstefnugagna
09.00 Setning
Hluti 1: Þessi hluti ráðstefnunnar verður byggður á lýsingu á ákveðnu slysi og afleiðingum þess. Fyrirlesarar vísa í atvikalýsinguna eftir því sem þeir telja hana eiga við en lýsa réttarstöðu tjónþolans út frá sínum landsrétti. Skrifleg greinargerð um réttarstöðu vegna þessa slyss auk tveggja annarra slysa eru hluti ráðstefnugagna.
09.10 Réttarstaðan í Danmörku. Fyrirlesarar: Glen Winzor, settur skrifstofustjóri og Preben K. Hansen, ráðgjafi frá Arbejdsskadestyrelsen.
09.50 Réttarstaðan í Svíþjóð. Fyrirlesari: Agneta Nilsson, fulltrúi í vöruþróun hjá Försäkringskassan / Eva Lindell-Frantz, lektor við Háskólann í Lundi.
10.30 Kaffi.
10.45 Réttarstaðan í Noregi. Fyrirlesarar: dr. juris Morten Kjelland/Erik Fjeldstad lögmaður.
11.25 Réttarstaðan á Íslandi. Fyrirlesari: Guðmundur Sigurðsson, prófessor.
12.15 Spurningar og umræður.
12.30 Hádegisverður.
Hluti 2: Mat á varanlegri örorku.
13.30 Inngangur: Guðmundur Sigurðsson, prófessor.
13.40 Danskur réttur. Málfríður Gísladóttir, lögfræðingur hjá Arbejdsskadestyrelsen
14.00 Norskur réttur. Fyrirlesarar: dr. juris Morten Kjelland / Erik Fjeldstad lögmaður hjá TrygVesta.
14.20 Spurningar og umræður
14:45 Kaffi
Hluti 3: Tengsl opinbers og einkaréttar á bótaréttarsviðinu.
15.00 Inngangur: Ragnhildur Helgadóttir, prófessor.
15.05 Danskur réttur: Preben K. Hansen, ráðgjafi, Internationalt og politisk sekretariat, Arbejdsskadestyrelsen.
15.20 Sænskur réttur: Eva Lindell-Frantz, lektor við Háskólann í Lundi.
15.35 Norskur réttur: Dr. Juris Morten Kjelland, Háskólanum Osló
15.50 Spurningar og umræður
16.00. Ráðstefnuslit

