Almannatryggingar-Rannsókn

  

Dr. Guðmundur Sigurðsson og dr. Ragnhildur Helgadóttir fengu styrk úr Rannsóknarsjóði vegna rannsóknarinnar: Almannatryggingar: Hlutverk og samspil við önnur bótaúrræði. Að rannsókninni standa einnig Tryggingastofnun ríkisins og sérfræðingar sem þar starfa.   Rannsóknin hófst haustið 2005 og er áætlað að hún taki 3 ár.

  • Að kortleggja íslenskan bótarétt, almannatryggingakerfið og samspil bótakerfa. Þar með er stefnt að því að stuðla að aukinni þekkingu  á bótarétti með sérstakri áherslu á almannatryggingar og auka lögfræðilega umfjöllun um þetta efni. 
  • Að greina réttarstöðu bótaþega.
  • Að greina hvort íslenskur bótaréttur er á réttri leið.  Verður  það skoðað fyrst og fremst út frá sjónarhóli bótaþega og út frá hugmyndum um réttaröryggi. 

Fjallað er heildstætt um almannatryggingakerfið, þær réttarheimildir sem það hvílir á og beitingu þeirra og um tengsl þess við aðrar stoðir bótaréttarins. Þá er íslenska bótakerfið, og almannatryggingakerfið sérstaklega, borið saman við sambærileg kerfi á Norðurlöndum.

 Rannsóknin hefur ótvírætt gildi þar sem mjög lítið hefur verið fjallað um samspil bótakerfa og ekkert um almannatryggingakerfið í heild sinni, út frá lögfræðilegu sjónarhorni. Þannig skýrir rannsóknin réttarstöðu bótaþega og skýrari mynd fæst af bótaréttinum í heild. 

Útgáfa bókar í tengslum við rannsóknina:  Almannatryggingar og félagsleg aðstoð.

JPV útgáfa og Háskólinn í Reykjavík  gáfu út bókina Almannatryggingar og félagsleg aðstoð eftir Guðmund Sigurðsson og Ragnhildi Helgadóttur, prófessora við Háskólann í Reykjavík. Í bókinni er farið ofan í saumana á lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar og lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Inntak og framkvæmd hvers ákvæðis fyrir sig er skýrð með tilliti til reglugerða og annarra reglna sem settar hafa verið um framkvæmd þeirra, framkvæmdar Tryggingastofnunar og úrskurða úrskurðarnefndar almannatrygginga, auk dóma. Framsetningin gerir lesendum kleift að öðlast þekkingu á þeim réttindum sem löggjöfin mælir fyrir um og þeim skilyrðum sem þau eru bundin.

 Almannatryggingar og félagsleg aðstoð er grundvallarrit sem gagnast öllum sem koma að almannatryggingum í starfi sínu, til dæmis lögmönnum, starfsmönnum stjórnsýslunnar og heilbrigðisstarfsfólki. Bókinni er jafnfram ætlað að veita þeim sem sækja um eða njóta greiðslna eða þjónustu úr almannatryggingakerfinu innsýn í sviðið.

 Höfundarnir, dr. Guðmundur Sigurðsson og dr. Ragnhildur Helgadóttir  fengu styrk úr Rannsóknarsjóði til rannsóknarinnar sem birtist að hluta í bókinni. Að rannsókninni standa einnig Tryggingastofnun ríkisins og sérfræðingar hennar.

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica