Rannsóknarstofnanir lagadeildar

Við lagadeild HR eru starfræktar þrjár rannsóknarstofnanir og  Miðstöð Evrópuupplýsinga.  

Evrópuréttarstofnun HR

Markmið Evrópuréttarstofnunar HR er að auka rannsóknir á sviði Evrópuréttar hér á landi og stuðla að faglegri umræðu um stöðu Íslands í samfélagi Evrópuþjóða. Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla tengsl rannsókna og kennslu á sviði Evrópuréttar og Evrópu­mála, einkum með þátttöku nemenda í rannsóknavinnu við stofnunina. EHR veitir því nemendum í framhaldsnámi faglegan stuðning og aðstöðu til eigin rannsókna.
European Law Institute
Forstöðumaður er Margrét Einarsdóttir sérfræðingur við lagadeild HR.

Miðstöð Evrópuupplýsinga EU i

Evrópuupplýsingastofa (EUi) er starfrækt í bókasafninu í Úranusi, sú eina sinnar tegundar hérlendis. EUi-stofur er að finna víða í löndum utan Evrópusambandsins og eru þær hluti af upplýsingastefnu þess „EU in the World“. EUi-stofunni er fyrst og fremst ætlað að þjóna íslenska háskólasamfélaginu, auk fyrirtækja og stofnana. 

Auðlindaréttarstofnun HR

Stofnuninni er ætlað að vera vettvangur fyrir fræðilegar rannsóknir á réttarreglum sem varða hagnýtingu og vernd náttúruauðlinda, vera miðstöð þekkingar og fræðslu um auðlindarétt og veita þjónustu og ráðgjöf um lagaleg atriði á því sviði.
Institute on Natural Resources Law.
Forstöðumaður er Kristín Haraldsdóttir sérfræðingur við lagadeild.


 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica