Reglur um prófgögn í lagadeild
1. gr.
Umsjónarkennari námskeiðs ákveður hvort og hvaða gögn nemendum er heimilt að hafa með sér í próf.
2. gr.
Sé ekki annað ákveðið samkvæmt 1. gr. er nemendum heimilt að hafa eftirtalin gögn meðferðis í próf:
1. Gildandi lagasafn, útgefið af dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
2. A- og C-deildir Stjórnartíðinda.
3. Safn alþjóðasamninga og gerða ESB samkvæmt nánari ákvörðun kennara.
4. Útprentanir laga af Netinu sem skrá af gerðinni PDF og prentaðar í tveimur dálkum. Reglugerðir skulu vera prentaðar sem HTML skjöl af heimasíðu Stjórnartíðinda eða af réttarheimild.is. Deildin getur ákveðið að útprentanir séu stimplaðar og áritaðar af lagadeild.
3. gr.
Í gögnum sem greinir í 2. gr. eru heimilar einfaldar undirstrikanir og yfirstrikanir ásamt leiðréttingum á lagatexta. Leiðréttingar greini einvörðungu tilvísanir til númers og heitis nýrra laga. Heimilt er að merkja lagasafn með límmiðum þar sem fram kemur númer laga eða heiti laga. Óheimilt er að skrifa inn í lagasafn eða útprentanir af netinu umfram það sem að framan greinir.
4. gr.
Um brot og viðurlög við brotum á reglum þessum er vísað í almennar náms- og prófareglur HR, grein 4.5.
Samþykkt á deildarfundi lagadeildar 21.5.2004.
Breytingar samþykktar á deildarfundi lagadeildar 5.10.2006
Breytingar samþykktar á deildarfundi lagadeildar 4.12.2007.

