Um Lagadeild

Lagadeild Háskólans í Reykjavík er rökréttur fyrsti valkostur þeirra sem vilja stunda vandað og framsækið laganám hér á landi. Mikil áhersla er lögð á virk og veruleg tengsl við atvinnulífið m.a. með þátttöku sérfræðinga úr atvinnulífinu í kennslu, með starfsnámi og samspili  bóklegs náms og raunhæfra verkefna. Þessi tengsl eru liður í að búa nemendur sem best undir þáttttöku íatvinnulífinu að námi loknu.

Lagadeildin tók formlega  í notkun haustið 2010 nýja kennslustofu sem hönnuð er frá grunni og innréttuð sem dómsalur. Stofan þjónar m.a. þeim tilgangi að þjálfa nemendur í störfum dómara og lögmanna.

Í dómsalnum er dómaraborð fyrir allt að fimm dómara og sæti fyrir átta lögmenn, auk ræðustóls. Hátt er til lofts og vítt til veggja og tekur salurinn um 60 áhorfendur í sæti.Í dómsalnum er fullkominn tölvubúnaður, hljóðkerfi og fjórar tökuvélar  sem taka upp hljóð og mynd. Dómsalurinn er því með þeim tæknivæddustu á landinu.

Dómssalur í Nauthólsvík

Í lagadeild HR hefur verið lögð rík áhersla á að flétta inn í kennsluna lausn raunhæfra verkefna. Liður í því hefur verið að nemendur semji stefnur og greinargerðir og flytji mál fyrir dómi.

Með tilkomu nýja dómsalarins gefast fleiri tækifæri til að flétta hvers kyns raunhæf verkefni og málflutning enn betur inn í kennslu en gert hefur verið. Jafnframt hentar salurinn vel til hvers kyns kynninga á verkefnum og til þjálfunar í framsögn og ræðumennsku. Þá stendur laganemum til boða að nota salinn til málflutningsæfinga.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica