Umsagnir nemenda

Hulda Kristín Magnúsdóttir

Laganám mitt við Háskólann í Reykjavík nýttist mér á ýmsan hátt í starfi mínu í Finnlandi. Þar ber hæst hversu breiðan fræðilegan grunn, námið hefur upp á bjóða og má þar nefna félagarétt, hugverkarétt og evrópurétt.

Lesa meira
 

Sveinbjörn Claessen meistaranemi

SC

Ég upplifi námið í HR sem afar krefjandi og lærdómsríkt. Skólinn gerir metnaðarfullar kröfur til nemenda sem þeir komast ekkert hjá að rísa undir. Yfirleitt gengur vel að nálgast kennara utan kennslustunda og taka þeir vel í allar fyrirspurnir.


Lesa meira
 

Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður

Laganám við HR hefur reynst mér góður og sterkur grunnur fyrir störf mín á lögmannsstofu að nLaganám vð HR hefur reynst mér afar góður og sterkur grunnurámi loknu.


 

Kolbrún Birna Árdal ML í lögfræði og BA í sálfræði

 HauUmmæli Kolbrúnar Birnu útskrifuð með meistaranám í lögfræðistið 2005 steig ég mín fyrstu skref innan veggja Háskólans í Reykjavík. Ég hafði þá nýlokið BA-prófi í sálfræði og hugðist leggja stund á meistaranám í lögfræði (ML) Mér leið strax vel og fann að námið átti vel við mig.



Lesa meira
 

Hulda Hákonardóttir ML í lögfræði

Vorið 2008 útskrifaðist ég úr meistaranámi frá lagadeild Háskólans í Reykjavík. Í dag starfa ég sem saksóknarfulltrúi hjá embætti sérstaks saksóknara. Laganámið nýtist mér sem góður grunnur og undirbúningur undir hvers konar lögfræðileg viðfangsefni.


Lesa meira
 

Davíð Ingi Jónsson lögmaður

Meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík hefur nýst mér vel í starfi. Sú undirstöðuþekking sem aflað er í grunnnámi að viðbættu meistaranámi er öflugur grunnur fyrir störf lögfræðings. Gerðar eru ríkar kröfur til nemenda um skilning á þessari margslungnu fræðigrein

Lesa meira
 

María Kristjánsdóttir LL.M og lögmaður

Ég var í hópi fyrsta útskriftarárgangs lagadeildar HR í meistaranámi vorið 2007. Vorið 2008 útskrifaðist ég með LL.M. gráðu í alþjóðaviðskipta-lögfræði frá Fordham University í New York. Síðan þá hef ég starfað sem lögmaður hjá LEX lögmannsstofu.

Lesa meira
 

Andri Gunnarsson lögmaður

Alþjóðleg uppbygging námsins í HR, sérfróðir kennarar og áhersla á samræðu nemenda og kennara ásamt raunhæfum verkefnum hefur reynst mér gott veganesti út í atvinnulífið. .


Lesa meira
 

Halla Björgvinsdóttir meistaranemi

Nám við lagadeild Háskólans í Reykjavík gerir miklar kröfur til nemenda, meðal annars með verkefnavinnu sem veitir nemendum þjálfun í að beita námsefninu á raunhæfan hátt alveg frá byrjun. Ég tel að sú staðreynd á gæði kennslunnar. 

Lesa meira
 

Lára Herborg Ólafsdóttir

Að hefja nám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, er ein besta ákvörðun sem ég hef tekið. Aðgengi að kennurum og starfsfólki er hreint út sagt til fyrirmyndar. Lögfræðin er mjög krefjandi, en framúrskarandi þekking kennara og samheldni nemenda gerir þetta að mjög skemmtilegu og spennandi námi.

Lesa meira
 

Garðar Víðir Gunnarsson, LL.M og lögmaður

Námið við lagadeild Háskólans í Reykjavík var bæði fjölbreytt og hagnýtt. Eftir að hafa stundað bæði skipti- og framhaldsnám erlendis get ég fullyrt að gæði bæði námsins og kennslunnar standast fyllilega alþjóðlegan samanburð.

Lesa meira
 

Finnur Geir Beck lögmaður

„Ég ákvað að hefja nám við lagadeild HR eftir að hafa kynnt mér það sem til boða stóð í íslensku laganámi. Það skipti mig mestu máli að lagt væri mikið upp úr vandaðri kennslu og góðu skipulagi námsins. Námið hefur uppfyllt væntingar mínar og reynst mér skemmtilegt.“

Lesa meira
 

Lilja Bjarnadóttir meistaranemi

Ég valdi lögfræðina í HR vegna þess að ég var að leita að krefjandi og skemmtilegu námi og sé alls ekki eftir því vali. Mér finnst námið vel upp sett hvað varðar kennslu og raunhæf verkefni sem færa mann nær lesefninu. Þetta er vissulega krefjandi en jafnrfamt áhugavert og skemmtilegt nám. Svo er félagslífið rúsínan í pylsuendanum á þessu öllu saman. Ég mæli hiklaust með Háskólanum í Reykjavík

Lesa meira
 

Sigrún Eyjólfsdóttir ML í lögfræði

„Félagslífið er sá hluti námsins sem þjappar nemendum saman og vísindaferðirnar gefa þeim tækifæri til að sjá atvinnulífið í nýju ljósi. Heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir landsins hafa tekist mjög vel á undanförnum árum og hafa margir hverjir fundið þar sína framtíðarvinnustaði. Þetta léttir geð og lund nemenda og og hafa verið mjög góðar undirtektir á undanförnum misserum.“

Lesa meira
 

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica