Umsagnir nemenda
Sveinbjörn Claessen, meistaranemi í lögfræði
Ég upplifi námið í HR sem afar krefjandi og lærdómsríkt. Skólinn gerir metnaðarfullar kröfur til nemenda sem þeir komast ekkert hjá að rísa undir. Yfirleitt gengur vel að nálgast kennara utan kennslustunda og taka þeir vel í allar fyrirspurnir. Kennarar leggja áherslu á sjálfstæða hugsun nemenda og eins er mikið lagt upp úr hópavinnu. Þessi fjölbreytni í kennslunni þykir mér líkleg til að skila góðum árangri.

