Umsagnir nemenda
Hulda Kristín Magnúsdóttir
Hvernig nýttist laganámið hjá alþjóðlegu fyrirtæki í Finnlandi?
Laganám mitt við Háskólann í Reykjavík nýttist mér á ýmsan hátt í starfi mínu í Finnlandi. Þar ber hæst hversu breiðan fræðilegan grunn, námið hefur upp á bjóða og má þar nefna félagarétt, hugverkarétt og evrópurétt. Reynslan af því að starfa í hópum, stórum sem smáum, með ólíkum einstaklingum kom einnig að góðum notum. Kennsluefni á fleiri tungumálum en íslensku ásamt þjálfun í að leita frekari upplýsinga er grundvöllur fyrir starfi á lögfræðisviði hjá alþjóðlegu fyrirtæki.
Hulda Kristín Magnúsdóttir starfar sem lögfræðingur hjá lögmannsstofu í Brussel.

