Skipulag náms
Í MPM-náminu er mikið lagt upp úr bæði gagnreyndri tileinkun á námsefni og á virkri þátttöku nemenda í tímum. Stór hluti kennslunnar fer fram í hópvinnu þar sem unnið er með viðfangsefni sem tengjast atvinnulífinu og margskonar verklegar æfingar eru áberandi í náminu. Þannig er unnið með fjölbreytt raunveruleg viðfangsefni, tilfelli (case), þjálfunarhópa, samræðuhópa og beitt er margvíslegum aðferðum til að meta ástundun, árangur og metnað. Oft eru verkefnin viðfangsefni sem nemendur leggja fram úr starfsumhverfi sínu en einnig er unnið með þekkt dæmi úr rekstri fyrirtækja og stofnana. Auk hópavinnu og verkefnavinnu er hefðbundið fyrirlestrahald einnig mikilvægur hluti kennslunnar en fyrirlestrar í MPM-námi eru lifandi og skemmtilegir og þar er hvatt er til gagnrýninnar samræðu um námsefnið.
Kennslufyrirkomulag:
Kennt er aðra hvora viku:Föstudaga kl. 8:30 - 16:30
Laugardaga kl. 8:30 - 16:30Að auki er kennt á fimmtudögum kl. 16:35 - 20:30 einu sinni í mánuði.
Að jafnaði gildir sú regla að eitt námskeið er tekið fyrir í einu og því lokið áður en næsta námskeið hefst. Árangur er metinn með fjölbreyttum hætti. Sem dæmi má nefna einstaklingsskýrslur, hópaskýrslur, munnlegar kynningar hópa á niðurstöðum, dagbókarskrif, félagamat, munnleg próf og skrifleg próf.

