Almennar náms- og prófareglur
Almennar náms- og prófareglur
1. grein Reglur um skráningar
1.1. Úrsögn úr prófi og skráning í endurtektar- og sjúkrapróf
Nemandi, sem hættir í námskeiði án þess að segja sig úr því innan þess frests sem gefinn er, fær einkunnina núll í prófhluta námskeiðs. Nemendum er bent á að kynna sér vel allar dagsetningar í almanaki HR (sjá www.hr.is) enda gildir skráning í námskeið jafnframt sem skráning í próf. Á fyrstu tveimur kennsluvikum hvers námsmisseris geta nemendur breytt skráningum námskeiða. Til þess að breyta skráningu þurfa nemendur að senda kennslusviði (nemendabokhald@ru.is) póst eða koma við á skrifstofum skólans og fylla út þar til gert eyðublað. Skráning í endurtektar- og sjúkrapróf fer fram eftir að úrslit prófa liggja fyrir og er dagsetningu þeirra að finna í almanaki skólans. Prófgjald fyrir endurtektarpróf er 10.000 kr. fyrir hvert próf (frá og með haustmisseri 2009). Þeir sem eru veikir þegar lokapróf fer fram geta sótt um að gangast undir sjúkrapróf, sjá nánar í prófareglum.
1.2. Reglur um flutning nemenda á milli brauta
Þegar nemandi óskar eftir að skipta um braut innan deildar þarf hann að sækja um það formlega hjá deildarfulltrúa viðkomandi deildar. Nemandi getur aðeins skipt um braut milli anna.
Þegar nemandi óskar þess að stunda nám í annarri deild en hann er skráður í þarf hann að sækja um nám að nýju í þeirri deild sem hann óskar. Þótt nemandi hafi áður stundað nám í einni deild við skólann er það ekki trygging fyrir því að hann fái inni í annarri deild.
1.3. Hámarksfjöldi eininga sem nemandi getur tekið
Nemandi getur skráð sig í 36 ECTS að hámarki (sérreglur gilda í lagadeild og á frumgreinasviði eru nemendur skráðir í 30 einingar á önn). Ef nemandi óskar þess að vera í fleiri en 36 ECTS þarf viðkomandi að sækja um leyfi hjá deildarfulltrúa og vera með meðaleinkunn fyrir ofan 7,5.
1.4. Reglur um tímasókn
Nemendum ber að kynna sér sérreglur deilda þar sem kveðið er á um skyldumætingu í verklega tíma.
1.5. Þreytt próf
Hver deild setur reglur um hversu oft nemandi getur þreytt próf. Sjá nánar í reglum deilda.
2. grein Reglur um próf og einkunnir
2.1. Framkvæmd prófa
Skrifleg og munnleg lokapróf eru haldin í lok námskeiða á hverri önn og skal próftafla liggja fyrir sex vikum fyrir fyrsta lokapróf. Prófstjórn áskilur sér rétt til breytinga á próftöflu innan 7 virkra daga frá birtingu. Ef próf eru haldin í einstökum námskeiðum utan hefðbundins prófatímabils skal fylgja reglum um framkvæmd prófa að svo miklu leyti sem því verður við komið. Framkvæmd er þá alfarið í höndum viðkomandi kennara og deildar, í samráði við prófstjóra. Einkunnir úr skriflegum prófum eiga að liggja fyrir eigi síðar en tíu virkum dögum eftir prófdag.
Skil einkunna
Einkunnir úr munnlegu prófi eftir námskeið eiga að liggja fyrir eigi síðar en sjö virkum dögum eftir að prófinu lýkur. Einkunnir úr sjúkra- og endurtektarprófum skulu liggja fyrir eigi síðar en fimm virkum dögum eftir prófdag. Kennari getur sótt um undanþágu og frest á skilum einkunna sökum fjölda nemenda sem þreyta próf.
2.2. Prófstjóri og prófstjórn
Prófstjórar hafa samráð við viðkomandi forseta deilda og sviðstjóra frumgreinadeildar um tilhögun prófa. Prófstjórn skipa prófstjórar og forstöðumaður kennslusviðs. Kennari í námskeiði skal skila prófi til prófstjóra eigi síðar en 48 stundum áður en próf skal hefjast og á að skila þeim bæði á rafrænu formi og í ljósriti. Kennari sér til þess að fyllt sé út stöðluð prófforsíða sem er aðgengileg á tölvukerfi skólans. Þá skal kennari fylla út eyðublað þar sem tekið er fram hvaða hjálpargögn eru leyfileg og önnur fyrirmæli kennara.
2.3. Próftími
Próftími í skriflegum prófum skal aldrei vera styttri en tvær klukkustundir og ekki lengri en fjórar klukkustundir. Forseti deildar, í samráði við prófstjóra, getur þó leyft frávik í einstökum námsgreinum. Kennara eða staðgengli ber að koma a.m.k. einu sinni inn í prófstofur á meðan próf stendur yfir til þess að svara spurningum um vafaatriði eða önnur atriði á prófi. Nemandi, sem hyggst taka fleiri en eitt próf er falla á sama tíma, skal koma upplýsingum um það til prófstjóra þannig að gera megi ráðstafanir til að taka megi prófin hvert á fætur öðru.
2.4. Færsla lokaeinkunna
Kennarar færa lokaeinkunnir inn á kennsluvef námskeiða þar sem þær eru vistaðar og námskeiði er lokað. Kennslusvið birtir einkunnir eftir að kennari hefur lokað námskeiði og staðfest skil við prófstjóra.
2.5. Breyting einkunna
Kennslusvið áskilur sér rétt til fresta birtingu einkunna þar til síðasta próf hefur verið þreytt á viðkomandi námsbraut/námsári/deild.
3. grein Sérreglur um próf - frumgreinasvið
3.1 Próftökuréttur
Próf eru haldin í lok hvers misseris. Próftími í skriflegum prófum skal að jafnaði ekki vera lengri en þrjár klukkustundir. Lokaeinkunnir áfanga skulu liggja fyrir eigi síðar en tveimur vikum eftir próftöku. Lokaeinkunnir úr síðustu prófum hvers próftímabils skulu liggja fyrir áður en prófsýning fer fram. Nemandi á rétt á að sjá mat úrlausnar sinnar á skriflegu prófi og fá útskýringar kennara á prófsýningu deildarinnar sem haldin er innan þriggja daga frá birtingu allra einkunna og auglýst er á heimasíðu skólans. Vilji nemandi, sem ekki hefur staðist próf, eigi una mati kennara, getur hann snúið sér til sviðstjóra frumgreinasviðs innan fjögurra vikna frá birtingu einkunna og óskað eftir mati prófdómara. Nemandi sem fer fram á slíkt þarf að skila inn rökstuddri greinargerð til sviðstjóra þar sem fram koma ástæður fyrir beiðninni. Skipa skal prófdómara í hverju tilviki fyrir sig.
3.2 Einkunnir á frumgreinasviði
a) Einkunnir eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 - 10. Til að standast próf í áfanga þarf lágmarkseinkunn 5,0. Lokaeinkunn í hverjum áfanga er yfirleitt vegið meðaltal starfseinkunnar og prófseinkunnar. Hlutfall starfseinkunnar í hverjum áfanga er tilgreint í áfangalýsingum.
b) Nemanda er heimilt að þreyta próf fjórum sinnum í sama áfanga (sitja námskeið tvisvar). Nemandi verður að hlíta breytingum á námsefni viðkomandi áfanga milli próftilrauna. Óski nemandi eftir að þreyta námskeið í þriðja sinn þarf hann að stunda nám í viðkomandi áfanga að því marki sem sviðsstjóri ákveður.
c) Í áföngum þar sem starfseinkunn er hluti lokaeinkunnar missir nemandi próftökurétt hafi hann ekki staðið skil á tilskildum verkefnum. Hann telst þá hafa notað einn próftökurétt og á ekki rétt á að þreyta próf á þeirri önn.
4. grein Námsmat og einkunnagjöf
4.1. Samsetning einkunna
Gefin er ein lokaeinkunn fyrir hvert námskeið sem nemandi er skráður í. Lokaeinkunn er samsett af einkunn fyrir einn eða fleiri eftirtalinna þátta:
• Frammistaða nemanda í lokaprófi
• Frammistaða nemanda í áfangaprófum
• Frammistaða og þátttaka nemenda í tímum
• Verkefni og skýrslur nemanda meðan á námskeiði stendur
4.2. Lágmarkseinkunn
Einkunnir eru gefnar í heilum og hálfum tölum á kvarðanum 0-10. Lokaeinkunn lægri en 5 er falleinkunn og fást þá ekki einingar fyrir námskeiðið. Til þess að standast námskeið þarf nemandi að fá 5 í einkunn á lokaprófi. Ef lokapróf hefur minna vægi en 20% af lokaeinkunn hefur kennari heimild til að víkja frá áðurgreindu ákvæði. Háskóladeild getur ákveðið hærri lágmarkseinkunn fyrir einstök námskeið (sjá reglur deilda). Deild getur ákveðið að gefa staðið eða fall í stað tölueinkunnar í einstökum námskeiðum.
4.3.
Aðalkennari (eða kennarar) í námskeiði er ábyrgur fyrir gerð þeirra prófa og verkefna sem lögð eru fyrir í námskeiðinu og þá lokaeinkunn sem námskeiðið byggist á. Í skriflegum prófum skal gera grein fyrir vægi spurninganna á prófblaðinu. Ef einkunn í verklegu prófi er samsett úr fleiri en einum hluta skal gera nemendum grein fyrir vægi hvers hluta áður en prófið er þreytt. Heimilt er að setja það skilyrði fyrir rétti til töku skriflegra prófa að nemandi hafi náð tilskildum árangri í verklegum þætti, ástundun og/eða verkefnum. Heimilt er að krefjast þess að nemendur nái lágmarkseinkunn í öllum hlutum prófs þegar um samsett próf er að ræða, enda sé slíkt tilkynnt í upphafi námskeiðs.
4.4.
Námsmat í verklegum námskeiðum og lokaverkefnum er í höndum verkefniskennara. Vægi einstakra verkliða í lokaeinkunn skal tilkynnt skriflega í upphafi verklegra námskeiða. Heimilt er að krefjast þess að ákveðnir verkliðir séu leystir af hendi á fullnægjandi hátt til þess að nemandi teljist hafa lokið verklegu námskeiði. Slíkar kröfur verður að tilkynna skriflega í upphafi námskeiðs.
4.5. Reglur við próftöku og verkefnavinnu
Nemanda ber að vinna einn að lausn verkefna í einstaklingsverkefnum og áfanga- og lokaprófum. Nemendum er stranglega bannað að veita aðstoð eða þiggja aðstoð frá öðrum nemendum. Nemandi sem verður uppvís að óheiðarlegum vinnubrögðum í einstökum verkþáttum námskeiðs gæti hlotið allt frá núlli (0) í einkunn í námsþætti eða lokaeinkunn þess námskeiðs upp í brottvikningu úr skóla. Þá má veita munnlega eða skriflega áminningu fyrir óheiðarleg vinnubrögð samkvæmt reglum skóla um málsmeðferð. Um málsmeðferð slíkra mála vísast til 7. kafla reglna þessara.
Þar sem nemendur vinna að verkefnum til einkunna í hópi skal úrlausn hvers hóps vera sjálfstætt framlag hópsins. Þannig er öll afritun af vinnu nemenda annars hóps eða annarra innan eða utan skóla, í hvaða formi sem hún er, stranglega bönnuð og varðar sömu viðurlögum og greint er frá hér að ofan. Sjá nánar sérstakar reglur HR um verkefnavinnu „Þitt hugverk-þitt framlag“ í fylgiskjali með náms- og prófareglum. Jafnframt er vísað til siðareglna HR sem finna má á vef HR.
Kennari gerir að jafnaði skriflega grein fyrir þeim kröfum sem gerðar eru til nemenda á prófi og í verkefnum í námskeiði sínu. Þar á meðal gerir kennari grein fyrir því hvaða hjálpargögn eru nemendum heimil í prófum. Verði nemandi uppvís að notkun annarra hjálpargagna í prófi en leyfð eru getur það varðað þeim viðurlögum er að ofan greinir.
4.6. Reglur um skil á verkefnum
Í námskeiðum setur kennari reglur um skilafrest verkefna og ber nemendum að skila verkefni áður en frestur er útrunninn. Almennt er frestur til þess að skila verkefni ekki framlengdur hjá tilteknum nemanda eða hópi nemenda. Kennari hefur þó heimild til að víkja frá fresti og getur þá ákveðið að slík frávik kosti afföll af einkunn.
4.7. Reglur um munnleg próf
Nemendum sem þreyta munnleg próf er óheimilt að ræða sín á milli eða á annan hátt skiptast á upplýsingum um efni prófs á meðan á því stendur. Verði nemandi uppvís að slíku skal vísa málinu til forseta deildar til úrskurðar, sbr. 7. gr. reglna þessara.
5. grein Endurtekin próf og áfrýjunarréttur nemenda
5.1.
Heimilt er að skrá sig úr námskeiði fram að tiltekinni dagsetningu sem kemur fram í
kennsluskrá hvers árs. Nemendur geta sent rafrænan póst á
nemendabokhald@ru.is þar sem þeir tilgreina úrsögn úr námskeiði/um. Nemandi, sem
ekki mætir í próf og hefur ekki boðað lögmæt forföll, telst hafa þreytt próf og fær
einkunnina núll (fallin/nn mætti ekki í próf) í námskeiðinu.
5.2
Nemandi, sem ekki mætir til prófs sem hann er skráður í vegna veikinda, skal tilkynna forföll til skrifstofu skólans áður en próf hefst eða meðan á prófi stendur. Um heimapróf gilda þær reglur að ekki er hægt að tilkynna forföll á heimaprófi eftir að það er byrjað (gildir bæði um heimapróf sem eru á miðri önn og heimapróf í formi lokaprófa). Forföll vegna heimaprófa þarf að tilkynna með tölvupósti á nemendabokhald@ru.is og til kennara áður en próf byrjar. Læknisvottorði skal skila til skrifstofu skólans eigi síðar en þremur virkum dögum eftir að próf var haldið, annars telst nemandi hafa þreytt prófið (prófdagur telst ekki með þessum þremur virku dögum). Vottorð skal vera dagsett og undirritað af lækni sama dag og próf fór fram. Á vottorði skal enn fremur koma fram nafn námskeiðs og/eða prófs sem nemandi boðar forföll í. Sama gildir ef um veikindi barns nemanda er að ræða. Vottorð eru einungis tekin gild séu þau afhent á opnunartíma skrifstofu innan framangreinds frests. Nemendur sem skila vottorði vegna aðalprófs eru sjálfkrafa skráðir í sjúkrapróf. Þeim ber að tilkynna nemendabókhaldi áður en sjúkrapróf er haldið kjósi þeir ekki að þreyta sjúkrapróf. Sömu reglur um tilkynningar og veikindavottorð gilda fyrir áfangapróf. Hið sama gildir um verkefnaskil eftir því sem við á.
5.3.
Endurtektar- og sjúkrapróf í bóklegum námskeiðum eru að jafnaði haldin eftir
lokapróf hverrar annar. Endurtektar- eða sjúkrapróf kemur í stað lokaprófs en einkunnir fyrir verkefni, áfangapróf eða annað námsmat til lokaeinkunnar stendur óhaggað. Aðeins þeir nemendur sem mættu í lokapróf eða tilkynntu veikindi (sbr. 5.1.gr.) eiga rétt á endurtektar- eða sjúkraprófi. Nemandi, sem er veikur í aðalprófi og mætir í sjúkrapróf og nær ekki lágmarkseinkunn, hefur ekki rétt á að endurtaka próf. Nemandanum ber því að þreyta námskeiðið aftur til þess að öðlast próftökurétt. Deildir skulu setja reglur um hámarksfjölda endurtektarprófa sem nemandi má þreyta á námstímanum.
5.4.
Skráning í endurtektar- og sjúkrapróf fer fram eftir að úrslit úr prófum liggja fyrir og dagsetning þeirra hverju sinni kemur fram í almanaki kennsluskrár. Prófgjald fyrir endurtektarpróf kemur fram í verðskrá skólans. Ef nemandi tekur endurtektar- eða sjúkrapróf þá fellur fyrra próf hans í greininni úr gildi. Standist nemandi ekki endurtektar- og sjúkraprófið, gangi frá því eða komi ekki til prófs, hefur hann fyrirgert rétti sínum til þess að gangast oftar undir lokapróf í námskeiðinu án þess að sitja það að nýju.
Kjósi nemandi að skrá sig úr sjúkra- eða endurtektarprófi skal hann senda póst á nemendabokhald@ru.is eigi síðar en fyrir próf sama dag og það er haldið. Gjald fyrir endurtektarpróf er óendurkræft.
5.5.
Nemandi á rétt á að fá útskýringar kennara á mati skriflegrar úrlausnar sinnar ef hann æskir þess innan fimm daga frá birtingu einkunnar. Kennari skal verða við beiðni nemanda áður en sjúkra- og endurtektarpróf eru haldin, eða innan 7 virkra daga, hvort sem á undan kemur.
Vilji nemandi, sem ekki hefur staðist próf, þá eigi una mati kennarans getur hann kært mat til prófstjóra. Skal kæran lögð fram skriflega innan tíu virkra daga frá prófsýningu. Velji nemandi að kæra mat kennara skal skipaður prófdómari.
Prófdómari skal skipaður í samráði við forseta deildar.
5.6.
Ef nemandi kærir mat á skriflegu prófi er prófdómari skipaður. Skal prófdómari leggja sjálfstætt mat á úrlausn nemandans. Telji prófdómari ástæðu til að endurskoða einkunn þá er hann ekki bundinn af fyrri einkunn. Séu prófdómari og kennari ekki sammála um lokaeinkunn þá gildir einkunn prófdómara. Endurskoðuð einkunn skal liggja fyrir innan tveggja vikna frá því að kæra berst. Í munnlegum lokaprófum skal prófdómari ávallt vera viðstaddur og ákveður kennari/kennarar og prófdómari lokaeinkunn sameiginlega og er niðurstaða ekki kæranleg. Í lokaritgerðum þar sem prófdómari og leiðbeinandi gefa einkunn er niðurstaða ekki kæranleg.
5.7.
Þegar kærufrestur nemenda er liðinn og prófdómari hefur lokið við yfirferð prófa skulu þau afhent prófstjórn til varðveislu. Öll prófgögn skal varðveita í eitt ár. Auk þess varðveitir skólinn rafrænt afrit af öllum lokaprófum og eru próf úr aðalprófum aðgengileg nemendum í kennslukerfinu (skólinn áskilur sér rétt til að birta ekki krossapróf).
5.8.
Komi í ljós að kennari hafi gert mistök við útreikning eða skráningu einkunna, áskilur kennslusvið sér rétt til þess, í samráði við kennara, að leiðrétta einkunn innan tveggja vikna frá skilum kennara.
6. grein Framkvæmd prófa
6.1.
Prófstofur eru að jafnaði opnaðar 10 mínútum áður en próf hefst. Mæti nemandi meira en einni klukkustund eftir að próf hefst fær hann ekki að þreyta prófið.
6.2.
Meðan próf stendur yfir skal nemandi hafa gild persónuskilríki aðgengileg fyrir prófverði. Nemandi getur misst próftökurétt ef hann sýnir ekki viðeigandi persónuskilríki.
6.3.
Prófgæslufólk gefur merki um hvenær hefjast má handa við úrlausn og hvenær próftími er liðinn. Skulu þá allir nemendur í viðkomandi prófi skila úrlausnum sínum.
6.4.
Í samsettum prófum skulu nemendur svara hverjum prófhluta fyrir sig.
6.5.
Ef koma þarf á framfæri leiðréttingum eða upplýsingum til nemenda í prófi þá er það gert með því að skrifa þær á töflu eða dreifa þeim fjölrituðum til viðkomandi nemenda í samráði við prófstjóra.
6.6.
Enginn má skila úrlausnum áður en ein klukkustund er liðin frá upphafi próftíma. Að loknum próftíma ber öllum að skila úrlausnum þegar í stað. Verði nemandi uppvís að því að vinna að prófúrlausn eftir að skilatíma lýkur getur slíkt leitt til að gefið verði núll í einkunn (0) eða brottvísunar úr námskeiði. Nemendur hafa þó tíma til að ganga frá prófúrlausnum sínum og merkja þær eftir að próftíma lýkur, en ekki breyta eða bæta úrlausnirnar.
6.7.
Í öllum skriflegum prófum HR á að skila prófspurningum, úrlausnum og krassblöðum til prófgæslufólks að prófi loknu. Prófspurningar úr aðalprófum verða síðan aðgengilegar á kennsluvef HR (á ekki við um margvalsspurningar – krossaspurningar).
6.8.
Nemendur mega ekki hafa yfirhafnir, töskur eða annan búnað sem ekki tilheyrir leyfilegum hjálpargögnum við prófborðið. Óheimilt er að valda truflun í prófstofu.
6.9.
Tilraun til að nota farsíma eða önnur þráðlaus samskiptatæki meðan próf stendur yfir varðar brottvísun úr prófi. Hafi nemandi slík tæki meðferðis ber honum að slökkva á þeim og afhenda prófgæslufólki til varðveislu meðan próf stendur yfir.
6.10.
Nemanda er óheimilt að nota önnur hjálpargögn í prófi en tilgreind eru á prófforsíðu og varðar tilraun til slíks brottvísun úr prófi samkvæmt ákvörðun prófstjóra. Málinemandans skal síðan vísað til forseta deildar til nánari ákvörðunar samkvæmt 7. kafla reglna þessara.
6.11.
Nemendum er aðeins heimilt að yfirgefa prófborð áður en þeir hafa lokið prófinu til þess að fara á snyrtingu, og aðeins undir eftirliti fylgdarmanns.
6.12.
Nemanda er óheimilt að ljúka prófi án þess að skila úrlausnarblaði með annaðhvort nafni sínu og kennitölu eða prófnúmeri.
6.13.
Nemendur, sem ljúka prófi áður en tilskildum próftíma lýkur, skulu yfirgefa prófstofu og gæta þess að trufla ekki þá sem enn eru í prófi.
6.14.
Háskóladeildir geta ákveðið í samráði við prófstjóra að nota prófnúmer.
6.15.
Ef nemandi æskir þess við prófstjóra að þreyta próf annars staðar en í HR er prófstjóra þá heimilt, ef brýnar ástæður eru fyrir hendi, að heimila nemanda að taka prófið í annarri háskóla- eða menntastofnun, enda hafi verið samið fyrirfram við stofnunina um slíkt fyrirkomulag.
6.16.
Verði nemandi uppvís að því að hafa rangt við í prófi skal prófverkefnið og úrlausnin umsvifalaust tekin af nemandanum og prófstjóri eða staðgengill hans kallaður til. Máli nemandans skal síðan vísað til forseta deildar til úrskurðar.
6.17.
Nemandi sem óskar sérúrræða í prófum ber að skila umsókn til sérúrræðanefndar Háskólans í Reykjavík. Nefndina skipa fulltrúi Kennslusviðs, fulltrúi frá Lagadeild, læknir og fulltrúi frá Stúdentaþjónustu sem situr í nefndinni sem fulltrúi nemenda.
Nánari upplýsingar má finna inn á: http://www.hr.is/namid/ertu-ad-spa-i-hr/nams--og-profareglur-hr/
7. grein Málsmeðferð og kæruleiðir
7.1.
Við ákvarðanir sem varða réttindi og skyldur nemenda skal eftir því sem við á gæta
meginreglna stjórnsýsluréttar og góðra stjórnsýsluhátta.
7.2.
Mat á prófúrlausnum er kæranlegt til prófstjóra samkvæmt reglum 5. kafla náms- og prófareglna. Telji nemandi að aðrar ákvarðanir, sem snúa að kennslu- og/eða prófum, brjóti gegn rétti hans getur hann innan10 daga frá viðkomandi ákvörðun óskað skriflega og með rökstuddum hætti eftir endurskoðun hennar. Uni nemandi ekki niðurstöðu endurskoðunar getur hann vísað málinu til forstöðumanns kennslusviðs sem tekur rökstudda afstöðu til málsins. Forseti deildar hefur endanlegt ákvörðunarvald í slíkum málum.
7.3.
Forseti deildar tekur ákvarðanir um viðurlög vegna brota á náms- og prófareglum, öðrum reglum HR eða lögum og reglum sem um starfsemi skólans gilda. Brot geta
varðað núlli (0) í einkunn fyrir námsþátt í námskeiði, brottvísun úr námskeiði eða brottvísun úr skóla. Forseti deildar getur ákveðið að áminna nemanda í stað tveggja síðarnefndu úrræðanna með eða án annarra viðurlaga. Nemandi getur þó ekki fengið áminningu vegna sama brots nema einu sinni á námstímanum.
7.4
Nemandi, sem hefur tæmt kæruleiðir innan skólans, getur sent mál sitt til áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema, skv. 20. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Hlutverk áfrýjunarnefndarinnar skv. reglum nr. 1152/2006 er að úrskurða í málum þar sem námsmenn í háskólum sem hlotið hafa staðfestingu menntamálaráðherra, telja brotið á rétti sínum varðandi: a) framkvæmd prófa og námsmat, þ.m.t. fyrirlögn prófa, tilhögun einkunnagjafar, skipun prófdómara, birtingu einkunna. b) mat á námsframvindu, þ.m.t. rétt til endurtektarprófs. c) afgreiðslu umsókna um skólavist, þ.m.t. tilhögun mats á námi á milli skóla. d) brottvikningu nemanda úr skóla og beitingu annarra agaviðurlaga. Áfrýjunarnefndin tekur ekki til umfjöllunar mál sem snerta faglegt mat kennara (t.d. próf).

