Styrkir fyrir nemendur
Nýnemastyrkir í grunnnámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrki á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Allir nýnemar sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn.
Forsetalisti HR
Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.
Frumkvöðlasjóður Guðfinnu S. Bjarnadóttur
Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group, Viðskiptaráð Íslands og Háskólinn í Reykjavík og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju.
Nýnemastyrkir í meistaranámi
Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er veittur nemendum sem hefja meistaranám á haustönn og vorönn.
Styrkir fyrir meistaranema í tækni- og verkfræðideild
Tækni- og verkfræðideild býður upp á margvíslega styrki fyrir meistaranema til að mæta kostnaði við skólagjöld. Bæði er um að ræða styrki sem þar sem skólagjöd eru felld niður á grundvelli árarangurs (forsetastyrkir) og aðstoðarkennarastyrki.
Styrkir fyrir nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild
Nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild geta sótt um styrk í námssjóð Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík.
Nýsköpunarsjóður námsmanna
Nýsköpunarsjóður námsmanna útvegar áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Styrkjum er úthlutað til kennara á háskólastigi, fyrirtækja, rannsóknastofnana eða einstaklinga sem teljast hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði, til þess að ráða stúdenta til sumarstarfa. Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, jafnt fyrir atvinnulíf sem á fræðasviði.

