Forsetalisti

Styrkir fyrir afburðanemendur sem þegar eru í námi í HR

Þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista og fá skólagjöld næstu annar niðurfelld.

Til þess að vera gjaldgengir á forsetalista þurfa nemendur í dagskóla að ljúka að minnsta kosti 30 einingum á önn. Eingöngu námskeið sem nemendur ljúka á hefðbundnu próftímabili, eða fyrir þann tíma, eru gjaldgeng á forsetalista. Í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o. endurtektarpróf gilda ekki en sjúkrapróf gilda.

Upplýsingar um styrkina veita deildarfulltrúar og starfsfólk stúdentaþjónustunnar

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica