Frumkvöðlasjóður Guðfinnu S. Bjarnadóttur

 

Frumkvöðlasjóði dr. Guðfinnu Bjarnadóttur er ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju. Sjóðurinn ber nafn Guðfinnu Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors Háskólans í Reykjavík, vegna framlags hennar til frumkvöðlamenntunar innan HR.


Umsóknarfestur er til 1. júní ár hvert. Verðlaunin eru 400.000 krónur.

 

Fyrirkomulag styrkveitinga

Fyrirkomulag styrkveitinga úr sjóðnum er með þeim hætti að bestu viðskiptaáætlanirnar úr Nýsköpun og stofnun fyrirtækja (sem er skyldunámskeið fyrir laganema, verkfræðinema og viðskiptafræðinema) á vorönn og sumarönn ár hvert og úr námskeiðinu Rekstur, stjórnun og nýsköpun (sem er skyldunámskeið fyrir tæknifræðinema á haustönn ár hvert) eru sjálfkrafa þátttakendur í verðlaunasamkeppninni. Einnig er öllum nemendum HR frjálst að senda inn viðskiptaáætlanir, og er skilafrestur í þeim tilvikum 1. júní. Kennarar námskeiðanna velja úr þessum hópi þrjár til fimm áætlanir sem komast í úrslit í keppninni, og dómnefnd velur síðan þá sem hlýtur verðlaunin. Aðeins áætlanir sem ekki eru trúnaðarmál vegna samstarfsaðila eru teknar með í keppnina.

 

Upplýsingar um styrkinn veita starfsmenn stúdentaþjónustunnar.


Sjóðurinn var stofnaður 3. maí 2007. Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group Viðskiptaráð Íslands  og Háskólinn í Reykjavík.





 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica