Aðstoðarkennarastyrkir fyrir meistaranema við tækni- og verkfræðideild
Tækni- og verkfræðideild býður upp á aðstoðarkennarastyrki fyrir meistaranema. Styrkirnir eru ætlaðir meistaranemum í fullu námi sem ekki hafa fengið annan styrk tengdan meistaraverkefni.
Taka skal sérstaklega fram í umsókn um skólavist ef óskað er eftir aðstoðarkennarastyrk.
Einnig má senda tölvupóst á deildarfulltrúa meistaranáms kristinkri@ru.is um óskir þar að lútandi.
Vinnuframlag nemenda með aðstoðarkennarastyrki miðast við kennslu tveggja dæmatímahópa í sama námskeiði (eða sambærilegt) á hvorri önn. Öll kennsla nemenda með aðstoðarkennarastyrki verður undir umsjón aðalkennara námskeiðsins og reynds dæmatímakennara.
Nemendur sem hljóta aðstoðarkennarastyrki fá helming skólagjalda niðurfelldan auk launa fyrir kennslu í 8 mánuði (september – apríl).
Einnig er hægt að sækja um hálfan aðstoðarkennarastyrk sem miðast við kennslu eins dæmatímahóps og fær viðkomandi niðurfellingu helming skólagjalda.
Frekari upplýsingar veitir:
Kristín Kristinsdóttir, kristinkri@ru.is, verkefnastjóri meistaranáms í tækni- og verkfræðideild.

