Styrkir fyrir nemendur í tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild

Námssjóður Sameinaðra verktaka við Háskólann í Reykjavík úthlutar styrkjum til nemenda við tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild.

Styrkurinn er ætlaður nemendum sem sýnt hafa afbragðs námsárangur og einnig þeim sem hyggja á framhaldsnám. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn á heimasíðu HR og á auglýsingatöflum skólans. Hver styrkur er nú að upphæð kr. 150 þúsund.

Námssjóður Sameinaðra verktaka var upphaflega við Tækniháskóla Íslands og var fyrsta úthlutun í janúar árið 2000. Frá sameiningu HR og THÍ árið 2005 hefur sjóðurinn verið innan tækni- og verkfræðideildar og tölvunarfræðideildar. Alls hafa 35 nemendur hlotið styrk frá upphafi.

Í stjórn sjóðsins sitja Sturla Böðvarsson, Anna Bragadóttir og Ísleifur Árni Jakobsson.

 Þeir sem geta sótt um eru:

1. Nemendur sem hafa lokið námi og hafa fengið námsvist við menntastofnun sem veitir hærri prófgráðu í grein viðkomandi

2. Nemendur í tæknifræði, verkfræði eða tölvunarfræði sem eiga eitt misseri eftir.

3. Nemendur sem lokið hafa sams konar hluta hliðstæðs náms sem kann að verða kennt við skólann.

Skila skal umsóknum á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að fá á skrifstofu skólans ásamt staðfestu ljósriti af námsferilsblaði frá skólanum.

Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2010.

Frekari upplýsingar veitir Anna Bragadóttir (annabraga@ru.is) og Ása Björk Stefánsdóttir, kennslusviði asabjork@ru.is  

 


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica