Almennar náms- og prófareglur

1. grein  Reglur um skráningar

1.1. Úrsögn úr prófi og skráning í endurtektar- og sjúkrapróf

Nemendur bera ábyrgð á að skrá  sig í námskeið innan tímamarka sem er tilkynnt í  almanaki skólans. Nemendum er bent á að kynna sér vel allar dagsetningar í almanaki HR (sjá www.hr.is/almanak) enda gildir skráning í námskeið jafnframt sem skráning í próf. Á fyrstu tveimur kennsluvikum hvers námsmisseris geta nemendur breytt skráningum námskeiða. Til þess að breyta skráningu þurfa nemendur að senda kennslusviði (nemendabokhald@ru.is) póst eða koma við á skrifstofum skólans og fylla út þar til gert eyðublað.

Nemandi, sem ekki mætir í próf og hefur ekki boðað lögmæt forföll fær einkunnina núll (fallin/nn mætti ekki í próf) í námskeiðinu.

 Þeir sem eru veikir þegar lokapróf fer fram geta sótt um að gangast undir sjúkrapróf, sjá nánar í prófareglum.Skráning í endurtektar- og sjúkrapróf fer fram eftir að úrslit prófa liggja fyrir og er dagsetningu þeirra að finna í almanaki skólans. Kjósi nemandi að skrá sig úr sjúkra- eða endurtektarprófi skal hann senda póst á nemendabokhald@ru.is eigi síðar en fyrir próf sama dag og það er haldið. Prófgjald fyrir endurtektarpróf má sjá undir skólagjöld á vef HR, www.hr.is. Gjald fyrir endurtektarpróf er óendurkræft.

1.2. Reglur um flutning nemenda á milli brauta

Þegar nemandi óskar eftir að skipta um braut innan deildar þarf hann að sækja um það formlega hjá viðkomandi deild. Nemandi getur aðeins skipt um braut milli anna. 
Þegar nemandi óskar þess að stunda nám í annarri deild en hann er skráður í þarf hann að sækja um nám í þeirri deild sem hann óskar. Þótt nemandi hafi áður stundað nám í einni deild við skólann er það ekki trygging fyrir því að hann fái inni í annarri deild.

1.3. Hámarksfjöldi eininga sem nemandi getur tekið

Nemandi getur skráð sig í 36 ECTS að  hámarki (sérreglur gilda í lagadeild og á frumgreinasviði). Ef nemandi óskar þess að vera í fleiri en 36 ECTS þarf viðkomandi að sækja um leyfi hjá viðkomandi deild og vera með meðaleinkunn fyrir ofan 7,5.

1.4. Reglur um tímasókn

Nemendum ber að kynna sér sérreglur deilda þar sem kveðið er á um skyldumætingu.

1.5. Þreytt próf

Nemendum er heimilt að sitja hvert námskeið tvisvar sinnum og þreyta þau próf sem í boði eru í bæði skiptin. Að sitja námskeið þýðir að nemandi hefur verið skráður í námskeið eftir að frestur um úrsögn er liðinn.

2. grein  Reglur um próf og einkunnir

2.1. Framkvæmd prófa

Skrifleg og munnleg lokapróf eru haldin í  lok námskeiða á hverri önn og skal próftafla liggja fyrir sex vikum fyrir fyrsta lokapróf. Prófstjórn áskilur sér rétt til breytinga á próftöflu innan 7 virkra daga frá birtingu. Ef lokapróf eru haldin í einstökum námskeiðum utan hefðbundins prófatímabils skal fylgja reglum um framkvæmd prófa að svo miklu leyti sem því verður við komið. Framkvæmd er þá alfarið í höndum viðkomandi kennara og deildar, í samráði við prófstjóra.

2.2 Skil einkunna 
Einkunnir úr lokaprófum námskeiða (munnleg og skrifleg lokapróf) eiga að liggja fyrir eigi síðar en sjö virkum dögum eftir að prófinu lýkur. Einkunnir úr sjúkra- og endurtektarprófum skulu liggja fyrir eigi síðar en fimm virkum dögum eftir prófdag. Einkunnir lokaritgerða (lokaritgerðir á bakkalár- og meistarastigi) þurfa að liggja fyrir eigi síðar en 7 virkum dögum fyrir útskriftardag viðkomandi misseris. Kennari getur sótt um undanþágu og frest á skilum einkunna sökum fjölda nemenda sem þreyta próf. Kennslusvið tilkynnir um slíkan frest á heimasíðu námskeiðs sé hann veittur.

2.3. Prófstjóri og prófstjórn

Prófstjórar hafa samráð við viðkomandi forseta deilda og sviðstjóra frumgreina um tilhögun prófa. Prófstjórn skipa prófstjórar og forstöðumaður kennslusviðs. Kennari í  námskeiði skal skila prófi með staðlaðri forsíðu og upplýsingum um leyfileg hjálpargögn til prófstjóra eigi síðar en tveimur virkum dögum (48 stundum) áður en próf skal hefjast og á að skila þeim á rafrænu formi.

2.4. Próftími

Próftími í skriflegum lokaprófum skal aldrei vera styttri en tvær klukkustundir og ekki lengri en fjórar klukkustundir. Forseti deildar, í samráði við prófstjóra, getur þó leyft frávik í einstökum námsgreinum. Kennara eða staðgengli ber að koma a.m.k. einu sinni inn í prófstofur á meðan próf stendur yfir til þess að svara spurningum um vafaatriði eða önnur atriði á prófi. Nemandi, sem tekur fleiri en eitt próf er falla á sama tíma, skal koma upplýsingum um það til prófstjóra svo hægt sé að gera ráðstafanir til að taka megi prófin hvert á fætur öðru.

2.5. Færsla lokaeinkunna

Kennarar færa lokaeinkunnir inn á kennsluvef námskeiða þar sem þær eru vistaðar og námskeiði er lokað. Kennslusvið birtir lokaeinkunnir eftir að kennari hefur lokað námskeiði og staðfest skil við prófstjóra.

2.6. Birting einkunna

Kennslusvið áskilur sér rétt til fresta birtingu einkunna þar til síðasta próf hefur verið þreytt á viðkomandi námsbraut/námsári/deild.

3. grein  Sérreglur um próf - frumgreinar

3.1 Próftökuréttur

Próftími í skriflegum lokaprófum skal að jafnaði ekki vera lengri en þrjár klukkustundir. Lokaeinkunnir áfanga skulu liggja fyrir eigi síðar en sjö virkum dögum eftir próftöku. Lokaeinkunnir úr síðustu lokaprófum hvers próftímabils skulu liggja fyrir áður en prófsýning fer fram. Nemandi á rétt á að sjá mat úrlausnar sinnar á skriflegu prófi og fá útskýringar kennara á prófsýningu deildarinnar sem haldin er innan þriggja daga frá birtingu allra einkunna og auglýst er á heimasíðu skólans.

3.2 Einkunnir í frumgreinanámi

a) Til að standast áfanga þarf lágmarkseinkunn 5,0. Lokaeinkunn í hverjum áfanga er yfirleitt vegið meðaltal starfseinkunnar og prófseinkunnar. Hlutfall starfseinkunnar í  hverjum áfanga er tilgreint í áfangalýsingum.

b) Óski nemandi eftir að þreyta námskeið  í þriðja sinn þarf hann að stunda nám í viðkomandi áfanga að því marki sem forstöðumaður frumgreina ákveður.

c) Í áföngum þar sem starfseinkunn er hluti lokaeinkunnar missir nemandi próftökurétt hafi hann ekki staðið  skil á tilskildum verkefnum. Hann telst þá hafa notað  einn próftökurétt og á ekki rétt á að þreyta próf á þeirri önn.

Að öðru leyti gilda almennar náms- og prófareglur HR um nemendur frumgreina.

4. grein  Námsmat, einkunnagjöf og próftaka

4.1. Samsetning einkunna

Gefin er ein lokaeinkunn fyrir hvert námskeið  sem nemandi er skráður í. Lokaeinkunn getur verið samsett af einkunn fyrir einn eða fleiri eftirtalinna þátta:

• Frammistaða nemanda í lokaprófi 
• Frammistaða nemanda í áfangaprófum 
• Frammistaða og þátttaka nemenda í tímum 
• Verkefni og skýrslur og önnur vinna nemanda meðan á námskeiði stendur

4.2. Lágmarkseinkunn

Einkunnir eru gefnar í heilum og hálfum tölum á kvarðanum 0-10. Lokaeinkunn lægri en 5,0 er falleinkunn og fást þá ekki einingar fyrir námskeiðið. Til þess að standast námskeið þarf nemandi að fá að lágmarki 5,0 í einkunn á lokaprófi. Ef lokapróf hefur minna vægi en 20% af lokaeinkunn hefur kennari heimild til að víkja frá áðurgreindu ákvæði. Deild getur ákveðið hærri lágmarkseinkunn fyrir einstök námskeið (sjá reglur deilda). Deild getur ákveðið að gefa staðið eða fall í stað tölueinkunnar í einstökum námskeiðum.

4.3.

Aðalkennari (eða kennarar) í námskeiði er ábyrgur fyrir gerð þeirra prófa og verkefna sem lögð  eru fyrir í námskeiðinu og samsetningu lokaeinkunnar. Í skriflegum prófum skal gera grein fyrir vægi spurninganna á prófblaðinu. Ef einkunn í verklegu prófi er samsett úr fleiri en einum hluta skal gera nemendum grein fyrir vægi hvers hluta áður en prófið er þreytt. Heimilt er að setja það skilyrði fyrir rétti til töku skriflegra prófa að nemandi hafi náð tilskildum árangri í verklegum þætti, ástundun og/eða verkefnum. Heimilt er að krefjast þess að nemendur nái lágmarkseinkunn í öllum hlutum prófs þegar um samsett próf er að ræða, enda sé slíkt tilkynnt í upphafi námskeiðs.

4.4.

Námsmat í verklegum námskeiðum, er í höndum kennara. Vægi einstakra verkliða í lokaeinkunn skal tilkynnt á námskeiðsvef í upphafi verklegra námskeiða. Heimilt er að krefjast þess að ákveðnir verkliðir séu leystir af hendi á fullnægjandi hátt til þess að nemandi teljist hafa lokið verklegu námskeiði. Slíkar kröfur verður að tilkynna í upphafi námskeiðs.

4.5. Reglur við próftöku og verkefnavinnu

Kennari gerir grein fyrir uppbyggingu og vægi einstakra þátta í prófum og verkefnum. Kennari gerir einnig grein fyrir því hvaða hjálpargögn eru nemendum heimil í prófi.

Nemanda ber að vinna einn að lausn verkefna í áfanga- og lokaprófum. Nemanda er óheimilt að veita aðstoð eða  þiggja aðstoð frá öðrum og öll afritun er óheimil.

Nemanda ber að vinna einn að einstaklingsverkefnum nema kennari hafi tilkynnt vinnureglur sem kveða á um annað.  Þar sem nemendur vinna að hópverkefni skal úrlausn vera sjálfstætt framlag hópsins. Vinnuframlag einstakra hópmeðlima til verkefnisins skal vera sambærilegt. Allur hópurinn er ábyrgur fyrir heildarverkefninu. Öll afritun er óheimil. Sjá nánar sérstakar reglur HR um verkefnavinnu Þitt hugverk-þitt framlag“ í fylgiskjali með náms- og prófareglum.

Brot á þessum reglum varða viðurlögum samkvæmt grein 7.3. Um meðferð slíkra mála vísast til 7. kafla reglna þessara.

4.6. Reglur um skil á verkefnum

Í námskeiðum setur kennari reglur um skilafrest verkefna og ber nemendum að skila verkefni áður en frestur er útrunninn. Almennt er frestur til þess að skila verkefni ekki framlengdur hjá tilteknum nemanda eða hópi nemenda. Kennari hefur þó heimild til að víkja frá fresti og getur þá ákveðið að slík frávik kosti afföll af einkunn.

4.7. Reglur um munnleg próf

Nemendum sem þreyta munnleg próf er óheimilt að  ræða sín á milli eða á annan hátt skiptast á upplýsingum um efni prófs á meðan á því  stendur. Verði nemandi uppvís að slíku skal vísa málinu til forseta deildar til úrskurðar, sbr. 7. gr. reglna þessara.

4.8. Reglur um próftöku á tölvur

Nemendum sem þreyta  próf á tölvur er aðeins heimilt að nota þann hugbúnað/forrit sem er tilgreindur af umsjónarmanni prófs/kennara. Próftaka er óheimilt með öllu að nota samskiptaforrit eða annan hugbúnað/forrit nema þann sem er tilgreindur meðan á próftöku stendur. Aðeins er leyfilegt að vista prófgögn á það svæði sem umsjónarmaður prófs tilgreinir. 
Yfirgefi próftaki tölvu meðan á prófi stendur, t.d. vegna ferðar á salerni, ber honum/henni að ganga þannig frá tölvu að prófúrlausn sé ekki sýnileg öðrum á skjánum. 
Próftakar eru minntir á að vista gögn reglulega. Noti próftaki eigin tölvu við úrlausn prófs áskilur umsjónarmaður prófs eða prófstjóri sér rétt til að skoða þau gögn og forrit/hugbúnað sem eru á tölvunni og eru notuð við úrlausn prófs. Einnig áskilur umsjónarmaður prófs sér rétt til að skoða annan hugbúnað á tölvunni og notkun hans. Próftökum, sem þreyta próf á tölvur, er hleypt inn í prófstofu 15 mínútum áður en próf hefst. Hvorki matur né drykkir eru leyfilegir á meðan að próftöku stendur.

5. grein  Endurtekin próf og áfrýjunarréttur nemenda

5.1

Nemandi, sem ekki mætir til prófs sem hann er skráður í vegna veikinda, skal tilkynna forföll til nemendabókhalds áður en próf hefst eða meðan á prófi stendur. Um heimapróf gilda þær reglur að ekki er hægt að tilkynna forföll á heimaprófi eftir að það er byrjað (gildir bæði um heimapróf sem eru á miðri önn og heimapróf í formi lokaprófa). Forföll vegna heimaprófa þarf að tilkynna með tölvupósti á nemendabokhald@ru.is og til kennara áður en próf byrjar. Læknisvottorði skal skila til skrifstofu skólans eigi síðar en þremur virkum dögum eftir að próf var haldið, annars telst nemandi hafa þreytt prófið (prófdagur telst ekki með þessum þremur virku dögum). Vottorð skal vera dagsett og undirritað af lækni sama dag og próf fór fram. Á vottorði skal enn fremur koma fram nafn námskeiðs og/eða prófs sem nemandi boðar forföll í. Sama gildir ef um veikindi barns nemanda er að ræða. Vottorð eru einungis tekin gild séu þau afhent á opnunartíma skrifstofu innan framangreinds frests. Vottorð sem ekki eru rétt dagsett eru ekki tekin gild. Nemendur sem skila vottorði vegna aðalprófs eru sjálfkrafa skráðir í sjúkrapróf. Þeim ber að tilkynna nemendabókhaldi áður en sjúkrapróf er haldið kjósi þeir ekki að þreyta sjúkrapróf. Sömu reglur um tilkynningar og veikindavottorð gilda fyrir áfangapróf og verkefnaskil. Kennari ber ábyrgð á útfærslu og framkvæmd áfangaprófa og verkefna og skal tilkynna fyrirkomulag í upphafi námskeiðs, m.a. hvort um sjúkrapróf/sjúkraskil verði að ræða.

5.2.

Endurtektar- og sjúkrapróf í  námskeiðum eru að jafnaði haldin eftir 
lokapróf hverrar annar. Endurtektar- eða sjúkrapróf kemur í stað lokaprófs en einkunnir fyrir verkefni, áfangapróf eða annað námsmat til lokaeinkunnar stendur óbreytt. Aðeins þeir nemendur sem mættu í lokapróf eða tilkynntu veikindi (sbr. 5.1.gr.) eiga rétt á endurtektar- eða sjúkraprófi. Nemandi, sem er veikur í aðalprófi og mætir í sjúkrapróf og nær ekki lágmarkseinkunn, hefur ekki rétt á að endurtaka próf. Nemandanum ber því að þreyta námskeiðið aftur til þess að öðlast próftökurétt. Nemandi sem er veikur í lokaprófi námskeiðs og sjúkraprófi þarf að þreyta námskeiðið aftur.

5.3.

Nemendur sem eiga lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um hjá prófstjóra að þreyta sjúkra- og endurtektarpróf  á ákveðnum prófstöðum úti á landi (Akureyri, Egilsstaðir, Ísafjörður, Höfn í Hornafirði, Sauðárkrókur og Vestmanneyjar). Þegar nemendur skrá sig í sjúkra- og endurtektarpróf  þá þarf að senda beiðni um próftökustað á nemendabokhald@ru.is.
Leyfi fyrir próftöku er þó háð leyfi prófstjóra og kennara sem meta hvert tilfelli fyrir sig.

5.4.

Nemandi á rétt á að fá útskýringar kennara á mati prófúrlausnar sinnar ef hann æskir þess innan fimm daga frá birtingu einkunnar. Kennari skal verða við beiðni nemanda áður en sjúkra- og endurtektarpróf eru haldin, eða innan 7 virkra daga, hvort sem á undan kemur. Vilji nemandi, sem ekki hefur staðist lokapróf eigi una mati kennarans getur hann kært mat til prófstjóra. Það er háð því skilyrði að viðkomandi hafi skoðað úrlausn sína með kennara áður en kæra er send inn. Sama á við um áfangapróf og verkefnaskil. Skal kæran lögð fram skriflega innan þriggja virkra daga frá prófsýningu eða skilum á verkefnum þar sem við á. Velji nemandi að kæra mat kennara skal skipaður prófdómari. Prófdómari skal skipaður í samráði við forseta deildar.

5.5.

Ef nemandi kærir mat á skriflegu prófi er prófdómari skipaður. Skal prófdómari leggja sjálfstætt mat á  úrlausn nemandans. Telji prófdómari ástæðu til að endurskoða einkunn þá er hann ekki bundinn af fyrri einkunn. Séu prófdómari og kennari ekki sammála um lokaeinkunn þá gildir einkunn prófdómara. Endurskoðuð einkunn skal liggja fyrir innan tveggja vikna frá því að kæra berst. Í munnlegum lokaprófum skal prófdómari ávallt vera viðstaddur og ákveður kennari/kennarar og prófdómari lokaeinkunn sameiginlega og er niðurstaða ekki kæranleg. Í lokaritgerðum þar sem prófdómari og leiðbeinandi gefa einkunn er niðurstaða ekki kæranleg.

5.6.

Þegar kærufrestur nemenda er liðinn og prófdómari hefur lokið við yfirferð prófúrlausna skulu þær afhentar prófstjórn til varðveislu í eitt ár. Auk þess varðveitir skólinn rafrænt afrit af öllum lokaprófum og eru próf úr aðalprófum aðgengileg nemendum í kennslukerfinu (skólinn áskilur sér rétt til að birta ekki krossapróf).

5.7.

Kennslusvið getur, í samráði við  kennara, leiðrétt bersýnilegar villur í útreikningi eða skráningu einkunna. Á það m.a. við þegar birt lokaeinkunn í námskeiði er ekki í samræmi við samanlagðar einkunnir allra þátta námsmats eða tekur ekki tillit til þess að  nemandi þarf fá lágmarkseinkunn í lokaprófi til þess að standast námskeið, sbr. grein 4.2.

6. grein  Framkvæmd prófa

6.1.

Prófstofur eru að jafnaði opnaðar 10 mínútum áður en próf hefst. Mæti nemandi meira en einni klukkustund eftir að próf hefst fær hann ekki að þreyta prófið.

6.2.

Meðan próf stendur yfir skal nemandi hafa gild persónuskilríki aðgengileg fyrir prófverði. Nemandi getur misst próftökurétt ef hann sýnir ekki viðeigandi persónuskilríki.

6.3.

Prófgæslufólk gefur merki um hvenær hefjast má  handa við úrlausn og hvenær próftími er liðinn. Skulu þá allir nemendur í viðkomandi prófi skila úrlausnum sínum.

6.4.

Í samsettum prófum skulu nemendur svara hverjum prófhluta fyrir sig.

6.5.

Ef koma þarf á framfæri leiðréttingum eða upplýsingum til nemenda í prófi þá er það gert með  því að skrifa þær á töflu eða dreifa þeim ljósrituðum til viðkomandi nemenda í samráði við prófstjóra.

6.6.

Ekki má skila úrlausnum fyrr en ein klukkustund er liðin frá  upphafi próftíma. Að loknum próftíma ber öllum að skila úrlausnum þegar í stað. Nemendur hafa þó tíma til að  ganga frá prófúrlausn sinni og merkja hana eftir að próftíma lýkur, en ekki breyta eða bæta úrlausnirnar.

Verði nemandi uppvís að því að vinna að prófúrlausn eftir að próftíma lýkur skal prófgæslufólk stöðva háttsemina og gera prófstjóra viðvart sem tekur ákvörðun frekari aðgerðir.

6.7.

Að  loknum öllum skriflegum prófum eiga nemendur að skila prófspurningum, úrlausnum og rissblöðum til prófgæslufólks.

6.8.

Nemendum er óheimilt að nota önnur hjálpargögn í prófi en tilgreind eru á forsíðu prófs. Er þar meðal annars átt við fartölvur, reiknivélar og önnur tæki. Nemendur mega ekki hafa yfirhafnir, töskur eða annan búnað sem ekki tilheyrir leyfilegum hjálpargögnum við prófborðið. Óheimilt er að valda truflun í  prófstofu.

6.9.

Varsla og notkun farsíma er bönnuð á meðan próf stendur yfir. Hafi nemandi farsíma meðferðis ber honum að slökkva á símanum, setja hann í tösku eða afhenda prófgæslufólki til varðveislu meðan próf stendur yfir. Öll samskipti eru óheimil á meðan á prófi stendur, þar með talin samskipti með búnaði sem kennari kann að hafa heimilað samkvæmt grein 6.8.

6.10.

Verði nemandi uppvís að því að hafa rangt við í  prófi skal prófgæslufólk stöðva háttsemi og kalla til prófstjóra sem tekur ákvörðun um frekari viðbrögð. Prófstjóra er heimilt að vísa nemanda úr prófi. Máli viðkomandi nemanda er síðan vísað til forseta deildar samkvæmt grein 7 um málsmeðferð og kæruleiðir.

6.11.

Nemendum er einungis heimilt að yfirgefa prófborð áður en þeir hafa lokið prófi til þess að fara á snyrtingu og aðeins undir eftirliti fylgdarmanns.

6.12.

Nemanda er ávallt skylt að skila úrlausnarblaði með annað hvort nafni sínu og kennitölu eða prófnúmeri.

6.13.

Nemendur, sem ljúka prófi áður en tilskildum próftíma lýkur, skulu yfirgefa prófstofu og prófsvæði. Þeim ber að gæta þess að trufla ekki þá sem enn eru í prófi.

6.14.

Deildir geta ákveðið í samráði við prófstjóra að nota prófnúmer. 

6.15.

Ef nemandi æskir þess við prófstjóra að þreyta próf annars staðar en í HR er prófstjóra heimilt, ef brýnar ástæður eru til, að heimila nemanda að taka prófið í annarri háskóla- eða menntastofnun, enda hafi verið samið fyrirfram við stofnunina um slíkt fyrirkomulag. Um sjúkra- og endurtektarpróf, sjá grein 5.3.

6.16.

Nemandi sem óskar sérúrræða í prófum ber að skila umsókn til sérúrræðanefndar Háskólans í Reykjavík. Nefndina skipa fulltrúi kennslusviðs, fulltrúi frá lagadeild, læknir og fulltrúi frá stúdentaþjónustu sem situr í nefndinni sem fulltrúi nemenda. 
Nánari upplýsingar má finna inn á:
sérúrræði í námi.

7. grein  Málsmeðferð og kæruleiðir

7.1.

Við ákvarðanir sem varða réttindi og skyldur nemenda skal eftir því sem við á gæta 
meginreglna stjórnsýsluréttar og góðra stjórnsýsluhátta.

7.2.

Mat á prófúrlausnum er kæranlegt til prófstjóra samkvæmt reglum 5. kafla náms- og prófareglna. Telji nemandi að  aðrar ákvarðanir, sem snúa að kennslu- og/eða prófum, brjóti gegn rétti hans getur hann innan 10 daga frá viðkomandi ákvörðun óskað skriflega og með rökstuddum hætti eftir endurskoðun hennar. Uni nemandi ekki niðurstöðu endurskoðunar getur hann vísað málinu til forstöðumanns kennslusviðs sem tekur rökstudda afstöðu til málsins og vísar því í framhaldi til forseta viðeigandi deildar. Forseti deildar hefur endanlegt ákvörðunarvald í slíkum málum.

7.3.

Forseti deildar tekur ákvörðun um viðurlög vegna brota á náms- og prófareglum. Brot geta varðað:

a)     Einkunn 0 fyrir námsþátt og áminning.

b)     Einkunn 0 fyrir námskeið og áminning.

c)     Tímabundin brottvísun úr skóla með möguleika á endurinnritun sem að jafnaði myndi þýða fjarveru í eina önn og áminning.

d)     Brottvísun úr skóla án möguleika á endurinnritun.

Nemandi sem gerst hefur brotlegur við náms- og prófareglur fyrirgerir að jafnaði rétti til valkvæðs starfsnáms, skiptináms sem og tækifærum til að koma fram fyrir hönd skólans.

Forseti deildar getur í undantekningartilvikum ákveðið að  veita nemanda áminningu án annarra viðurlaga. Nemandi getur þó ekki fengið áminningu einvörðungu vegna brots á náms- og prófareglum nema einu sinni á námsferlinum.

Endurtekið  brot á náms- og prófareglum varðar ávallt þyngri viðurlögum en fyrsta brot. Endurtekið brot varðar almennt ekki vægari viðurlögum en brottvísun í eina önn ásamt áminningu eða brottvísun úr skóla. Við sérstakar aðstæður má ljúka máli sem er endurtekið brot með ákvörðun samkvæmt b lið. Við ákvörðun á viðurlögum skal taka tillit til vægis verkefnis og alvarleika brots.

Komi upplýsingar fram um að nemandi hafi haft rangt við á prófi eða viðhaft óheiðarleg vinnubrögð í verkefnavinnu eftir að einkunn hefur verið gefin fyrir námsþátt, eða námskeiði/námi er lokið, er forseta deildar heimilt að ógilda einkunn fyrir námsþátt eða námskeið. Forseta deildar er jafnframt heimilt að beita öðrum viðurlögum eftir því sem við á. Sé um lokaverkefni/lokaritgerð að ræða og nemandi hafi þegar útskrifast er forseta deildar heimilt að óska eftir því að rektor afturkalli prófgráðu.

7.4

Nemandi, sem hefur tæmt kæruleiðir innan skólans, getur sent mál sitt til áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema, skv. 20. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Hlutverk áfrýjunarnefndarinnar skv. reglum nr. 1152/2006 að úrskurða í málum þar sem námsmenn í háskólum sem hlotið hafa staðfestingu menntamálaráðherra, telja brotið á rétti sínum varðandi: a) framkvæmd prófa og námsmat, þ.m.t. fyrirlögn prófa, tilhögun einkunnagjafar, skipun prófdómara, birtingu einkunna. b) mat á námsframvindu, þ.m.t. rétt til endurtektarprófs. c) afgreiðslu umsókna um skólavist, þ.m.t. tilhögun mats á námi á milli skóla. d) brottvikningu nemanda úr skóla og beitingu annarra agaviðurlaga. Áfrýjunarnefndin tekur ekki til umfjöllunar mál sem snerta faglegt mat kennara (t.d. próf).

Samþykkt og uppfært í maí 2011.






 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica