Skapaðu þér sérstöðu á vinnumarkaði

Styttri námskeið

Fjölbreytt úrval vandaðra námskeiða fyrir stjórnendur og sérfræðinga á sviðum tækni, viðskipta og laga. Leiðbeinendur eru kennarar við Háskólann í Reykjavík, samstarfsaðilar úr íslensku atvinnulífi og erlendir sérfræðingar.


Lengri námskeið

Námstími er frá einni önn upp í eitt ár. Námskeiðin henta vel samhliða starfi og veita sum þeirra ígildi ECTS-eininga. Meginmarkmið er að veita þátttakendum viðurkenningu í sínu fagi eða auka þekkingu á ákveðnu fagsviði.


Fyrirtækjalausnir

Sérsniðin námskeið sem henta starfsumhverfi ákveðinnar skipulagsheildar. Námskeiðin eru blanda af fræðilegu og verklegu efni þar sem kennarar yfirfæra efnið á hvern hóp fyrir sig, sama hver bakgrunnur starfshópsins er.


Næstu námskeið

21.05.2013 Stjórnendaþjálfun Greining ársreikninga

Á námskeiðinu verður fjallað um lykilstærðir í greiningu ársreikninga þar sem áhersla verður lögð á þau atriði sem mestu máli skipta í núverandi rekstrarumhverfi s.s. sjóðstreymi og fjárhagsstöðu. Nánar
 

24.05.2013 Stjórnendaþjálfun Spjaldtölvur í skólastarfi fyrir skólastjórnendur og starfsfólk skólaskrifstofa

Námskeið haldið í samstarfi við Skema

Á námskeiðinu verður fjallað um þá hagræðingar- og skipulagsmöguleika sem fylgja notkun spjaldtölvutækni í skólastarfi. Nánar
 

27.05.2013 Stjórnendaþjálfun Áhættustýring

Námskeiðið nær til fræðilegs og verklegs hluta áhættustýringar. Horft er til notkunar fyrirtækja á áhættustýringu til að stjórna og mæla áhættu, hvort sem um er að ræða markaðs-, útlána- eða vaxtaáhættu. Nánar
 

Öll námskeið