Styrkir
Opni háskólinn bendir þér á eftirfarandi leiðir til að niðurgreiða eða fjármagna námskeið:
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Nýttu þér tækifærið og kannaðu þinn rétt!
|
|
VR veitir sínum félagsmönnum starfmenntastyrk eftir stigaeign sem nemur allt að helmingi af námskeiðsgjaldi. Frekari upplýsingar um réttindi innan VR sjá vr.is. |
|---|---|
![]() |
Stéttarfélag verkfræðinga veitir félagsmönnum námstyrki. Sjá frekari upplýsingar á vfi.is. |
|
|
Úthlutað er úr Starfsmenntunarsjóði hjúkrunarfélags Íslands fjórum sinnum á ári. |
![]() |
Endurmenntunarsjóðir félaga Kennarasambandsins veita styrki til einstaklinga og hópa vegna endur- og símenntunar samkvæmt sérstökum reglum sem gilda um sjóðina |
|
|
Starfsafl, Starfsmennt Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins veitir fullgildum félagsmönnum sínum allt að 60.000 kr námstyrk eða mest 75% kostnaðar. Sjá frekari upplýsingar |
![]() |
Landsmennt veitir fullgildum félagsmönnum sínum námsstyrki eftir að námi er lokið. Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Sjóðurinn styrkir starfsmenntun í fyrirtækjum. Greitt er að hámarki kr. 60.000 á ári og allt að því sem nemur 75% af námskeiðsgjaldi. Sjá frekari upplýsingar |
![]() |
Ríkismennt veitir sínum félagsmönnum allt að kr. 60.000 og er sjóðnum heimilt að veita styrki sem eru allt að 75% af heildarkostnaði náms. Ríkismennt er þróunar- og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands. Sjá frekari upplýsingar |
|
|
Sveitamennt er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélags Starfsgreinasambands Íslands. Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjá nánari upplýsingar hér. |
|
|
Bandalag háskólamanna, Markmið Starfsmenntunarsjóðs Bandalags háskólamanna er að tryggja fjárhagslegan grundvöll símenntunar og endurhæfingarnáms félagsmanna BHM. Flestir félagsmenn BHM hafa rétt til að sækja um í Starfsmenntunarsjóð. Sjá frekari upplýsingar hér. |
![]() |
Vinnumálastofnun vinnur í samstarfi við Samtök iðnaðarins, háskóla landsins og tækni- og hugverkafyrirtæki að átaki í menntun einstaklinga í tækni- og raungreinum. Um er að ræða menntunarúrræði innan hugverkaiðnaðar sem er kynnt hér. |
|
|
Menntaáætlun Evrópusambandsins sameinar undir einum hatti stuðning Evrópusambandsins við menntun á öllum stigum, frá leikskóla til háskóla og síðan fullorðinsfræðslu. Enskt heiti áætlunarinnar, „Lifelong learning programme“ vísar til þess að menntun sé verkefni sem vari frá vöggu til grafar. Sérstök áhersla er lögð á samstarf og samnýtingu reynslu og þekkingar um menntun og þjálfun innan Evrópu. Nánari upplýsingar er að finna hér. |











