Gæðakerfi HR í rannsóknum

Gæðakerfi HR í rannsóknum nær til alls rannsóknarstarfs innan háskólans, þ.e. allra rannsókna akademískra starfsmanna og annarra sem stunda rannsóknir við skólann, þar með talið rannsóknanema í doktors- og meistaranámi. Megintilgangur þess er að styrkja stöðu skólans sem háskóla og gæði rannsókna innan hans og að styðja útfærslu á markmiðum háskólans um kröftugt rannsóknarstarf. Gæðakerfinu má skipta upp tvö lykilferli:

Árlegt einstaklingsmat:  Á hverju ári stýra fimm alþjóðlegir sérfræðingar mati á rannsóknarstarfi hvers einstaks akademísks starfsmanns. Megintilgangurinn með matinu er að kanna gæði rannsókna og rannsóknastarfsemi allra akademískra starfsmanna við skólann á 5 ára bili.  Rannsóknarráð HR ber ábyrgð á þessu mati og stjórnar því í samstarfi við Rannsóknarþjónustu HR.  Rannsóknarþjónustan sér um að samræma framkvæmd á matsferlinu. Þetta árlega mat á rannsóknarárangri er m.a. liður í að efla akademískan styrk skólans og ná settum markmiðum með uppbyggingu á innra starfsemi hans. Matið er afar mikilvægur þáttur í gæðaeftirliti rannsókna við skólann og er útkoman úr þessu mati notuð til grundvallar við skiptingu rannsóknarframlags ríkisins til HR samkvæmt fjárlögum ár hvert. Þannig hafði rannsóknarvirkni áranna 2007-2011 bein áhrif á  hlutfallslega skiptingu rannsóknarframlags ríkisins á milli deilda skólans árið 2012. Einnig eru niðurstöður matsins notaðar í árlegum starfsmannaviðtölum deildarforseta.

Matsnefndin styðst við árlega rannsóknarskýrslu sem sérhver akademískur starfsmaður skólans skilar til að meta rannsóknarstarfsemi hans eða hennar.  Öllum háskólastarfsmönnum sem sinna rannsóknum og gefa þær út undir merkjum Háskólans í Reykjavík er skylt að skila árlegri rannsóknarskýrslu fyrir 1. október ár hvert. Matsnefndinni er ætlað að byggja mat sitt fyrst og fremst á gæðum og fjölda birtinga á ritrýndum vettvangi. Nefndin raðar akademískum starfsmönnum í eftirfarandi flokka  á skalanum 0-4.
0)      Engin eða smávægileg rannsóknarstarfsemi.
1)      Lítil en ekki ómarkverð rannsóknarstarfsemi
2)      Framlag til rannsóknarsamfélagsins en lítil áhrif.
3)      All nokkur og virk hlutdeild í rannsóknarsamfélaginu, með greinilegu framlagi og áhrifum.
4)      Mikilvæg og virk þátttaka í rannsóknarsamfélaginu, með  talsverðu framlagi og áhrifum.

Niðurstaða rannsóknarmats 2011 - Fjöldi akademískra starfsmanna í hverjum flokki

Matsnidurstada-2011---Scores

Mat deilda: Í samræmi við rannsóknarstefnu háskólans hefur skólinn einnig ákveðið að sérhver deild skuli gangast undir rannsóknarmat á fimm ára fresti sem  framkvæmt verði af nefnd alþjóðlegra sérfræðinga á viðkomandi sviði.  Höfuðmarkmið matsins er að kanna gæði rannsókna og rannsóknarstarfs deildanna með hliðsjón af alþjóða rannsóknarstarfi í faginu og að birta matsskýrslu fyrir rannsóknarstarf innan deildarinnar.  Áætlað er að fyrsta slíka matið verði gert árið 2012.  Rannsóknarráð HR ber ábyrgð á þessu mati í samvinnu við Rannsóknarþjónustu HR.  Framkvæmd matsferlisins er samræmd af Rannsóknarþjónustu HR.

Kynning og birting grunngagna, leiðbeininga og niðurstaðna: Í lok mats á rannsóknavirkni einstaklinga er skrifuð matsskýrsla og er henni ritstýrt af meðlimum matsnefndarinnar með aðstoð tengiliðar.  Skýrslan er trúnaðargagn og ekki gerð opinber. Skýrslan er gerð aðgengileg viðkomandi deildarforseta og það er á hans eða hennar ábyrgð að kynna niðurstöðurnar fyrir einstökum starfsmönnum. Tölfræðileg samantekt á niðurstöðu matsins er birt á heimasíðu HR. Í lok mats á deildum er skrifuð matsskýrsla og henni ritstýrt af meðlimum matsnefndar með aðstoð tengiliðar.  Matsskýrslan er trúnaðarskjal, en, meginniðurstöður hennar verða þó birtar á vefsíðu háskólans. Niðurstöðurnar eru notaðar til að þróa rannsóknarstarf deildarinnar og þróa áætlanir þar um.



 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica