Rannsóknarþjónusta HR

Samkvæmt rannsóknarstefnu Háskólans í Reykjavík er stefnt að því að efla ytri fjármögnun á rannsóknum við skólann með því að stórauka sókn í innlenda og erlenda sjóði.  Í því sambandi er mikilvægt að við skólann sé rekin öflug rannsóknarþjónusta sem vaktar tækifæri til sóknar í rannsóknarsjóði og veitir aðstoð við gerð umsókna um styrki, vinnslu fjárhagsáætlana og rekstur rannsóknarverkefna.

Rannsóknarþjónusta HR var sett á fót í september 2007og heyrir beint undir Rannsóknarráð skólans, og tilgangur hennar er að stuðla að því að rannsóknastefna HR komist í framkvæmd, og að framtíðarsýn HR um að verða miðstöð alþjóðlegs rannsóknasamstarfs verði að veruleika.  Helstu verkefni hennar eru eftirfarandi: 

I. Fjármögnun rannsókna

  • Vöktun á styrkmöguleikum innanlands og utan (ESB og USA).
  • Aðstoð við gerð umsókna.
  • Aðstoð við skýrslugerð og fjárhagsuppgjör vegna styrktra verkefna.

II. Mat á árangri

  • Gagnasöfnun, tölfræðivinnsla og skýrslugerð um afrakstur rannsókna innan skólans. 
  • Vinna við utanaðkomandi mat á rannsóknastarfi deilda. 

III. Kynningar- og tengslastarf

  • Kynningar á rannsóknum skólans, til dæmis á vef HR og með atburðum.
  • Tengiliður HR við Rannís og aðra styrkveitendur.
Forstöðumaður Rannsóknarþjónustu HR er:

Kristján Kristjánsson
Sími: 599 6372
Farsími: 825 6372
Tölvupóstur: kk (hjá) ru.is

Verkefnastjóri Rannsóknarþjónustu HR er:

Björgvin Ægir Richardsson
Sími: 599 6437
Farsími: 825 6437
Tölvupóstur: bjorgvinr (hjá) ru.is


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica