RefWorks heimildavinna

RefWorksnotendur athugið:  BUHR hefur ákveðið að endurnýja ekki áskriftina að heimildarskráningarforritinu RefWorks, svo þeir sem eru að nota RefWorks hafa til áramóta til að breyta yfir í annað forrit, t.d. EndNote Web eða Zotero. Áslaug Eiríksdóttir á bókasafni (aslaug@ru.is) svarar öllum frekari spurningum, veitir kennslu og kynningar. Leiðbeiningar á íslensku um hvernig á að færa heimildirnar þínar úr RefWorks yfir í EndNote Web má finna hér, og yfir í Zotero hér.


RefWorks er veflægt heimildaskráningarforrit sem hjálpar þér að halda utan um og skipuleggja heimildir þínar.
Með RefWorks getur þú einnig búið til heimildaskrá með einni skipan samkvæmt völdum staðli, t.d. APA.

  • Forritið er ekki sett upp á einstökum tölvum heldur notað á vefnum og takmarkast notkun þess því ekki við HR-netið.
    Notendur þurfa hins vegar að vera innan HR-netsins (IP svæða HR) þegar þeir skrá sig í fyrsta sinn.
    Aðeins þeir sem hafa netfang hjá HR geta skráð sig. 
  • Að skráningu lokinni færðu staðfestingu á aðgangsorðum senda í tölvupósti, ásamt upplýsingum um svokallaðan Group Code.
    Geymdu þessar upplýsingar vel!

Innskráning

  • Smelltu hér á RefWorks eða á myndina hér að neðan.
    Þá kemur upp valmyndin hér að neðan.
    Smelltu þar á Sign up for an Individual Account ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta sinn og fylgdu leiðbeiningunum sem upp koma.
  • Þá átt þú Account sem þú getur notað.
    Næst þegar þú skráir þig inn í RefWorks þarftu einungis að skrá þig inn sbr. leiðbeiningar hér að neðan.

 Skrá sig í RefWorks


 

 

1 Skrifaðu notandanafn þitt

 

2 Settu inn lykilorðið sem þú bjóst
   þér til

 

 

3 Smelltu á Login og aðgangur
   þinn að RefWorks er orðinn
   virkur

 

  • Athugaðu að alltaf þarf að slá inn Group Code þegar unnið er í RefWorks utan HR-netsins. Group Code Háskólans í Reykjavík er: RWREYKJAVIKU.

 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica