Sálfræði

Sálfræði_11Nám til BSc-prófs er 180 ECTS einingar.
Námið er byggt á alþjóðlegum viðmiðum og reynslu og er sérstaklega hannað til að koma til móts við alþjóðlegar kröfur. Námið er skipulagt út frá viðmiðum Breska sálfræðingafélagsins (BPS Accreditation Standards) um uppbyggingu grunnnáms í sálfræði á háskólastigi. Uppbygging námsins felst í
áherslu á að kenna öll grunnsvið sálfræðinnar, þar á meðal lífeðlislega sálfræði, hugræna sálfræði, þroskasálfræði, sálfræði einstaklingsmunar, félagssálfræði og rannsóknaraðferðir. Til viðbótar taka nemendur valnámskeið til að mynda á sviði heilsusálfræði, vinnusálfræði og gervigreindar.

Fjölbreyttar náms- og kennsluaðferðir og alþjóðlegt samstarf

RannsóknarstofuvinnuNámið samanstendur af fyrirlestrum, verkefnavinnu, rannsóknarstofuvinnu og vettvangsnámi. Kennslan fer að nokkru leyti fram á ensku. Þar að auki býðst nemendum kostur á að taka hluta af námi sínu erlendis í gegnum skiptinemaáætlun HR.

Markmið að námi loknu

MIMG_3900---Copyarkmiðið er að BSc-námið í sálfræði veiti nemendum sem bestan mögulegan grunn til framhaldsnáms eða starfa á Íslandi sem erlendis. BSc-gráðan veitir góða grunnþekkingu og innsýn inn í vísindi og starfsemi sálfræðinga. Gráðan er vel metin í margvíslegum störfum í samfélaginu, þar á meðal í kennslu, hagnýtum rannsóknum, heilsueflingu og forvörnum, blaðamennsku, markaðssetningu, iðnaði og viðskiptum, upplýsingatækni og opinberum störfum. Starfsheitið sálfræðingur er lögverndað starfsheiti sem fæst eftir að minnsta kosti 2 ára sérnám á meistarastigi.


 

Umsagnir nemenda

Erla Guðmundsdóttir

„Það besta við sálfræðina er hversu námið er skemmtilegt og vel skipulagt. Kennslan einkennist af miklum metnaði kennara. Þá finnst mér frábært að allir sálfræðinemar fái tækifæri til að fara í vettvangsnám."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica