BSc Í SÁLFRÆÐI

23.3.2009

Breiður fræðilegur grundvöllur

Sálfræði_11Nám til BSc-prófs er 180 ECTS einingar.
Námið er byggt á alþjóðlegum viðmiðum og reynslu og er sérstaklega hannað til að koma til móts við alþjóðlegar kröfur. Námið er skipulagt út frá viðmiðum Breska sálfræðingafélagsins (BPS Accreditation Standards) um uppbyggingu grunnnáms í sálfræði á háskólastigi. Uppbygging námsins felst í
áherslu á að kenna öll grunnsvið sálfræðinnar, þar á meðal lífeðlislega sálfræði, hugræna sálfræði, þroskasálfræði, sálfræði einstaklingsmunar, félagssálfræði og rannsóknaraðferðir. Til viðbótar taka nemendur valnámskeið til að mynda á sviði heilsusálfræði, vinnusálfræði og gervigreindar. Nemendur taka fimm námskeið, 30 ECTS einingar, á hverri önn. Undantekning á fjölda námskeiða er sjötta önnin, þar sem rannsóknarverkefni er metið sem tvö námskeið (12 ECTS). Kennsla á hverri önn fer fram í 15 vikur.

IMG_3901Fjölbreyttar náms- og kennsluaðferðir og alþjóðlegt samstarf

Í náminu er fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum beitt, þar á meðal verkefnavinnu, rannsóknarstofuvinnu og vettvangsnámi. Kennslan fer að nokkru leyti fram á ensku og öðlast nemendur þar af leiðandi færni í að vinna verkefni á ensku. Þar að auki eiga nemendur kost á að taka þátt í skiptinemaáætlun HR sem gerir þeim kleift að ljúka hluta af námi sínu erlendis.

Markmið að námi loknu

Sálfræði_10Markmiðið er að BSc-próf í sálfræði við HR veiti nemendum sem bestan mögulegan grunn til framhaldsnáms eða starfa á Íslandi sem erlendis. Á Íslandi gilda strangar reglur um starfsemi sálfræðinga. Lágmarksmenntunarkröfur eru gerðar til þeirra sem starfa til að mynda sem klínískir sálfræðingar, ráðgjafarsálfræðingar, menntasálfræðingar eða vinnusálfræðingar. Í þessum tilvikum þarf að minnsta kosti tveggja ára sérnám á meistarastigi til viðbótar við grunnnám (líkt og BSc-gráðu í sálfræði). Ef nemandi velur að fara ekki í sérnám í sálfræði veitir BSc-gráðan góða grunnþekkingu og innsýn inn í vísindi og starfsemi sálfræðinga. Gráðan er vel metin í margvíslegum störfum í samfélaginu, þar á meðal í kennslu, hagnýtum rannsóknum, heilsueflingu og forvörnum, blaðamennsku, markaðssetningu, iðnaði og viðskiptum, upplýsingatækni og opinberum störfum.

 

Umsagnir nemenda

Rakel Sölvadóttir

„Námið heillaði mig mjög mikið, ekki síst áherslan sem lögð er á þverfaglegt nám í HR. Aðstaðan, umhverfið og uppbygging á rannsóknarsetrum, auk stuðnings við nýsköpun er ástæða þess að ég kaus að stunda sálfræði við HR."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica