Forsetalisti

Þeir nemendur í grunnnámi sem ná bestum árangri á hverju próftímabili eiga kost á að komast á forsetalista deildarinnar og fá skólagjöld næstu annar felld niður.

Til þess að komast á forsetalista þurfa nemendur í grunnnámi að ljúka að minnsta kosti 30 ECTS á önninni.  Gjaldgeng á forsetalista eru eingöngu þau námskeið sem nemendur hafa lokið á hefðbundnu próftímabili, eða fyrir þann tíma.  Við útreikning á meðaleinkunn gilda þau próf sem tekin eru í fyrsta sinn í tilteknu námskeiði, m.ö.o. endurtektarpróf gilda ekki en sjúkrapróf gilda.

Miðað er við að um 2% nemenda í grunnnámi komist á forsetalista hverju sinni.

Forseta-og nýnemalistaathöfn

Mynd tekin á forseta- og nýnemalistaathöfn í janúar 2012

Forsetalisti vegna námsárangurs haustið 2011:
Einar Trausti Einarsson - 3. ár, sálfræði
Richard Eiríkur Tähtinen - 2. ár, sálfræði
Brynhildur Laufey Brynjarsdóttir - 1. ár, sálfræði

Forsetalisti vegna námsárangurs vorið 2011:
Einar Trausti Einarsson - 2. ár, sálfræði
Richard Eiríkur Tähtinen - 1. ár, sálfræði

Forsetalisti vegna námsárangurs haustið 2010:
Einar Trausti Einarsson - 2. ár, sálfræði
Þóra Kristín Flygenring - 1. ár, sálfræði

Forsetalisti vegna námsárangurs vorið 2010:
Einar Trausti Einarsson - 1. ár, sálfræði

Forsetalisti vegna námsárangurs haustið 2009:
Einar Trausti Einarsson - 1. ár, sálfræði



 


 



 

Umsagnir nemenda

kps2_Kristjan

„Það besta við sálfræðina er að hún samtvinnar mannlega hegðun við vísindin og hjálpar okkur að skilja gjörðir okkar og ástæður þeirra. Ég valdi að stunda nám í sálfræði við Háskólann í Reykjavík því þar er persónuleg kennsla og þjónusta og áhersla á hagnýt verkefni."

Lesa meira
 

Fleiri umsagnir


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica